Þýðir tónar frá sænskri lykilhörpu berast úr fyrirlestrasalnum í Þjóðminjasafninu. Á einum af fyrstu sólardögum vorsins var haldið hinsegin þjóðbúningaþing og Fredy Clue (þau/þeirra) var eitt fyrirlesara. Fredy er sænskt þjóðlagatónlistarkvár en þau eru líka frumkvöðlar á sviði þjóðbúninga. Þau gripu salinn um leið með sinni ljúfu nærveru, klædd í nýjan, sænskan þjóðbúning sem þau hönnuðu, Bäckadräkten. Markmiðið var að hanna kynhlutlausan búning svo öll hafi frelsi til að finna rætur sínar í þjóðlegum klæðnaði, einnig þau með óhefðbundna kyntjáningu. Fredy leiddi gesti í gegnum söguna af tilurð Bäckadräkten og tókst á einhvern undraverðan hátt að kveikja samtímis brennandi áhuga og veita djúpa kyrrð með einlægri frásögn og frumsaminni þjóðlagatónlist á lykilhörpuna.

„Áhugi minn á því að eignast þjóðbúning kviknaði á þjóðháttahátíðinni Bingsjöstämman. Þar var samankominn ótrúlegur fjöldi fólks í alls kyns þjóðbúningum og ég þráði að vera hluti af hópnum, þó á eigin forsendum. Það er lítil hefð fyrir þjóðbúningum í minni fjölskyldu svo ég kom alveg ferskt inn í senuna og til að byrja með leið mér smá eins og ég væri að þröngva mér inn í menninguna. En það var líka kostur út af fyrir sig, ég vissi svo lítið um þjóðbúninga og þekkti engan sem gat sagt mér til og því fannst mér svolítið eins og ég gæti gert það sem ég vildi.“
Þjóðbúningar eru bundnir þeim samfélagslegu viðmiðum sem eru ríkjandi á hverjum tíma, flestir evrópskir þjóðbúningar þróuðust því undir regluverki þar sem allt miðaðist við hin gagnkynhneigðu kynjahlutverk sem smugu inn í nær öll horn menningarinnar, þar með talinn klæðnað. Það gildir jafnt um sænsku og íslensku þjóðbúningana, við höfum skýrt mótaða karl- og kvenbúninga og strangar reglur um hver má nota hvaða búning og hvernig. Þar með verður þessi menningararfur að vettvangi þar sem kynjatvíhyggjan varðveitist. En Fredy fannst vera kominn tími á þjóðlegan kynusla.
„Ég sá fyrir mér að steypa saman hinu kvenlega og karllega og lét mig dreyma um að sauma einhvers konar buxnapils, eitthvað sem var ekki til fyrir. Það var samt eitthvað sem truflaði mig. Var þetta mögulegt? Er hægt að búa til nýja hefð, eitthvað alveg nýtt í þjóðlegu samhengi? Ég leitaði ráða hjá vinum mínum sem öll hvöttu mig áfram og smátt og smátt dofnaði efinn og verkefnið varð að hálfgerðri þörf. Ég þurfti að borða, ég þurfti að sofa og ég þurfti að búa til þjóðbúning!“

Fredy svaf á hugmyndinni í nokkur ár en alltaf skaut hún upp kollinum aftur. Helsta fyrirstaðan var kostnaður en sænski þjóðbúningurinn, eins og sá íslenski, er afar dýr. Svo kunnu þau heldur ekki að sauma! Um 2018 fór boltinn að rúlla, þau sóttu um styrki og hófu samstarf við textílsafn í Gautaborg sem tengdi þau við fatahönnuðinn Idu Björs sem saumaði mestallan búninginn.
„Í hönnunarferlinu byrjaði ég að líta inn á við og hlusta á allar litlu vísbendingarnar um mig sjálft, mig langaði til að mála mig og mig langaði að ganga í kjólum. Á meðan á hönnunarvinnunni stóð fann ég sjálft mig sem kynsegin og skyndilega passaði allt saman, ég vildi sameina hið kvenlega og karllega og búa til nýjan þjóðbúning, búning sem passaði inn í arfleifðina en næði líka utan um mína kynsegin sjálfsvitund. Þannig kom búningurinn eiginlega á undan uppgötvuninni um að ég væri trans. Mitt innra sjálf vinnur í gegnum hugmyndir og ég þurfti bara að hlusta. Svo fékk ég aðra kynsegin álitsgjafa í lið með mér og við leyfðum okkur að ímynda okkur og skissa draumaþjóðbúninga og unnum síðan úr þeim með Idu Björs sem tengdi hugmyndirnar við sænsku búningaarfleifðina.“

Útlit Bäckadräkten er að mestu innblásið af búningum frá miðhluta Svíþjóðar en trans tákn eru þéttofin í búninginn – bókstaflega! Vestið er ofið úr litum trans fánans, hvítum, bleikum og bláum. Hattinn sem fylgir með búningnum mætti líka sjá í hýru ljósi. Í upphafi höfðu Fredy og teymið kafað ofan í gögn textílsafnsins og hatturinn var með því mest hinsegin sem þau fundu.
„Í næsta nágrenni við safnið var til kvenþjóðbúningur með einslags karlahatti. Hatturinn var agnarsmár og var komið fyrir yfir snúð í hári, snoturt höfuðfat sem leit eiginlega meira út eins og kóróna en hattur. En það sem einkenndi konurnar á þessu svæði var hvað þær voru sjálfstæðar, karlarnir voru flestir kaupmenn og voru mikið fjarverandi, jafnvel hálft árið. Konurnar sátu því eftir og voru engum háðar, þær gátu hagað lífi sínu eftir eigin höfði. Þar með fengu þær mikið frelsi til að þróa eigin klæðaburð og það er talið líklegt að konurnar hafi ákveðið í sameiningu að taka upp þennan fína karlahatt og brjóta þannig hefðbundnar kynjareglur í klæðaburði. Svo getur auðvitað líka verið að einhver karlanna hafi komið heim færandi hendi með hatt úr annarri sýslu. En fyrri skýringin er svo góð feminísk saga að ég kýs að trúa henni,“ segir Fredy og brosir.

Tilgangur Bäckadräkten, og annarra kynhlutlausra þjóðbúninga, er að veita öllum frelsi til að finna rætur sínar í þjóðlegri búningaarfleifð án þess að það þurfi að vera bundið ákveðnu kyngervi. Þó er ekki vandalaust að eignast slíkan búning, bæði er það dýrt og tímafrekt en svo leynast í þjóðbúningasenunni einstaklingar sem hafa fest sig í þeirri meiningu að ekki megi hrófla við búningunum í þeirri mynd sem þeir eru núna, jafnvel þó það dragi ekkert úr gildi eða fegurð þeirra þjóðbúninga sem fyrir eru að búa til eitthvað nýtt. Það er mikilvægt að setja þjóðbúningana í samhengi við söguna og stöðu hinsegin fólks á þeim tíma sem þeir þróuðust. Búningarnir endurspegla samfélag þar sem talið var að kynin væru eingöngu tvö og að hefta þróun kynhlutlauss þjóðbúnings á grundvelli virðingar við eldri búningana mætti túlka sem áframhaldandi útilokun á hinsegin tilveru. Undirrituð vill því hvetja áhugasöm um kynhlutlausan þjóðbúning að slá til, víst er að það er ómæld þörf á þjóðlegum kynusla í íslensku þjóðbúningasenunni!
