Beint í efni

Ekki allar lesbíur þurfa réttindi

Hjalti Vigfússon þýddi úr ensku

Það er áhugaverð tenging á milli heimalands míns, Serbíu, og Íslands, þar sem ég bý. Þetta eru einu löndin í heiminum þar sem forsætisráðherra hefur opinberlega verið lesbía. 

Ana Brnabić var forsætisráðherra Serbíu frá 2017 til 2024. Hún gegndi embættinu í sjö ár, lengur en nokkur annar í sögu Serbíu og var fyrsta hinsegin manneskjan til að leiða ríkisstjórn á Balkanskaganum. Þó skipun hennar væri söguleg einkenndust viðbrögð hinsegin samfélagsins í Serbíu við skipun hennar, yfirlýsingum og embættisverkum af reiði og vonbrigðum. 

Þegar Brnabić tók við forystu ríkisstjórnarinnar lýsti hún því yfir að réttindi hinsegin fólks væru ekki á meðal hennar helstu stefnumála, þar sem það væru ekki forgangsmál þjóðarinnar. Sú yfirlýsing mætti mikilli reiði hinsegin samfélagsins þar sem lagaleg staða hinsegin fólks í Serbíu er afar slæm og hinsegin fólk sætir enn daglegu ofbeldi. Gagnrýnin varð háværari eftir að hún og kærasta hennar eignuðust barn saman árið 2019 með aðstoð tæknifrjóvgunar erlendis, leið sem er óaðgengileg flestum konum í Serbíu. Þegar hún var gagnrýnd fyrir að beita sér ekki fyrir lagabreytingum þess efnis að tvær konur gætu verið skráðir foreldrar barns sagði hún: „Ég þarf engin lög til að segja mér að þetta sé barnið mitt.“ Þannig var réttindabarátta hinsegin foreldra í Serbíu kveðin niður og Brnabić beinlínis farin að beita sér gegn baráttu hinsegin fólks. Sjálf þarf hún eflaust að hafa litlar áhyggjur af takmörkuðum réttindum enda bæði rík og valdamikil. En eftir situr hinsegin samfélagið réttindalaust. 

Spurningar um hvert raunverulegt stuðningsfólk Brnabić sé hafa löngum verið háværar. Sérstaklega innan hinsegin samfélagsins sem sá engar framfarir í réttindabaráttu sinni í stjórnartíð hennar. Kenningar hafa verið uppi um að framgangur hennar í serbneskum stjórnmálum hafi verið strategísk ákvörðun popúlísks forseta landsins, Aleksandars Vučić. Með því að skipa Brnabić forsætisráðherra gat hann sett fram ímynd framfara gagnvart Evrópuríkjum sem lengi hafa haft áhyggjur af stöðu mannréttinda í Serbíu og gagnrýnt hann fyrir ólýðræðislega tilburði, m.a. fyrir að skerða tjáningar- og fjölmiðlafrelsi. Hinsegin samfélagið í Serbíu hefur einnig sakað hann og Brnabić um bleikþvott með því að nota Brnabić til að svara gagnrýni um hvernig ríkisstjórn hans hefur komið fram við hinsegin fólk og aðra jaðarsetta hópa. Ímynd framsækni er búin til með því að skipa hinsegin manneskju forsætisráðherra en engar raunverulegar framfarir eiga sér þó stað í réttindabaráttu hinsegin fólks.

Það er auðvelt að sjá andstæður milli stjórnartíðar Önu Brnabić og Jóhönnu Sigurðardóttur á Íslandi þar sem stórir sigrar unnust í réttindabaráttu hinsegin fólks, m.a. með lagasetningu sem lögleiddi samkynja hjónabönd. Serbía er enn langt frá því að lögleiða samkynja hjónabönd, staðfesta samvist, erfðarétt samkynja para eða réttindi hinsegin foreldra. Það sem hinsegin samfélagið í Serbíu hefur lært er það að hinsegin fólk í valdamiklum stöðum er engin ávísun á aukin réttindi. Þau geta jafnvel unnið réttindabaráttunni skaða með því að veita stjórnvöldum skjól frá gagnrýni, samtímis því að bleikþvo þjóðernissinnuð markmið. Hinsegin fólk á heimsvísu getur jafnframt dregið lærdóm af því.