Hefur þú setið í skrítnu partíi og hlustað á fólk segja steikta hluti um hinsegin fólk? Finnst þér óþægilegt að gera mál úr því þegar einhver sem þér þykir vænt um segir vanhugsaða og jafnvel ljóta hluti? Skrollar þú alltaf fram hjá hatursfullum þráðum á netinu? Værirðu til í að taka þátt í því að kveða niður fordóma?
Þá er gagnræða eitthvað fyrir þig!

Áhrif gagnræðu á eldfima og hatursfulla umræðu
- Færri sannfærast af fordómafullum hugmyndum
- Færri tjá fordómafullar skoðanir
- Færri lesa eða heyra ummæli sem ýta undir fordóma
Hér á eftir fara nokkrar aðferðir fyrir þau sem treysta sér til að beita þeim og í þeim aðstæðum þar sem það er hægt. Við setjum öryggi okkar og velferð alltaf í fyrsta sæti.
Svara beint
Þú getur svarað beint, hvort sem það er í raunheimum eða á netinu.
Svara óbeint
Þú getur svarað óbeint með því að koma með innlegg í umræðuna.
Annað sjónarmið
Ég er ósammála þér.
Með því að koma með annað sjónarmið sýnir þú að ummælin eru ekki óumdeild.
Leiðréttingar
Þetta er ekki rétt. Staðreyndin er sú …
Með því að leiðrétta rangfærslur leyfir þú ósönnum fullyrðingum ekki að standa óáreittum.
Ákall um stillingu
Pössum hvernig við tölum um annað fólk.
Með ákalli um stillingu færð þú fólk til að gæta orða sinna. Fólk gerir það frekar þegar það er minnt á samskiptareglur samfélagsins.
Spyrja spurninga
Hvaðan koma þessar upplýsingar?
Hverju hefurðu helst áhyggjur af?
Með því að spyrja spurninga færð þú fólk til að rökstyðja mál sitt eða útskýra afstöðu sína. Hægt er að fylgja því eftir með annars konar svari.
Manneskjuvæðing og trú á fólki
Ég þekki fólk sem hefur persónulega reynslu af þessu og …
Ég held að þú hafir ekki hugsað þetta alveg til enda
Með því að manneskjuvæða fólkið sem ráðist er á vinnur þú gegn afmennskun þess í umræðunni. Með því að gera ráð fyrir því að fólk sé almennt gott og vilji vel vinnur þú gegn skautun á milli hópa í umræðunni.

Best er ef …
- Þú þekkir manneskjuna
- Þú ert í góðu jafnvægi
- Þú notar jákvæðni markvisst
- Þú hefur trú á fólki
- Þú notar góðar heimildir
- Þú forðast fórnarlambsvæðingu
Ég treysti mér ekki til að svara
Þegar við treystum okkur ekki til þess að svara, hvorki beint né óbeint, er líka hægt að biðja annað fólk um að stíga inn í. Mikilvægi samstöðu þvert á hópa hefur því aldrei verið meira. Það sem skiptir mestu máli er að við látum okkur umræðuna varða og gerum ekki ráð fyrir því að hún lagist af sjálfu sér.
Gagnræða (e. counterspeech) er aðferð sem hægt er að nota til að takast á við skaðlega orðræðu án þess að beita ritskoðun. Í raun felst hún í því að taka þátt í umræðunni á meðvitaðan og yfirvegaðan hátt. Tilgangurinn er fyrst og fremst að minnka skaðann af hættulegri orðræðu og koma í veg fyrir stigmögnun hennar. Þessa aðferð má nota hvar og hvenær sem er, þegar við metum það öruggt, hvort sem það er á netinu eða í súru samkvæmi.
Hefurðu áhuga?
Árangursrík gagnræða krefst æfingar. Samtökin ‘78 munu í haust bjóða upp á mánaðarlegar vinnustofur í gagnræðu, þar sem fjallað er um birtingarmyndir hættulegrar orðræðu og farið í gegnum æfingar í því að svara henni. Skráning á samtokin78.is/gagnraeda
