Beint í efni

Ást á prenti

Orðið rómantík er í orðabók skilgreint sem ,það sem varðar ástir‘. Við hinsegin fólk eigum það mörg sameiginlegt að hafa fundið fyrir skömm á svipuðum slóðum og við finnum fyrir ást eða hrifningu. Þess vegna dýrka undirrituð bækur sem styrkja og fagna ást (og þrá og kynlífi) hinsegin fólks. Á dögunum kom út íslensk skáldsaga sem tilheyrir þessum flokki, Ljósbrot eftir Ingileif Friðriksdóttur, og við vonum að gullöld íslenskra hinsegin ástarsagna sé nú hafin. Við hvetjum lesendur Tímarits Hinsegin daga því eindregið til þess að gleyma sér í undraheimi ástarsögunnar – og setjast svo við skriftir! Við þurfum ekki alltaf raunsæi og fagurbókmenntir, við eigum það líka skilið að lesa bækur sem gleðja okkur einfaldlega og þar sem allt endar vel.*

*Hér vildi Villi Ósk koma með happy ending brandara en Þorbjörg stöðvaði hán með harðri hendi. 

Alexis Hall

Við, höfundar þessa bókahorns, erum haldin (algjörlega venjulegu og alls ekki þráhyggjukenndu) æði fyrir breskum höfundi sem skrifar undir skáldanafninu Alexis Hall. Það er óhætt að segja að hann sé gríðarlega fjölhæfur penni, en við urðum ástfangin af skrifum hennar þegar við lásum bókaflokkinn Spires. Flokknum má lýsa best sem könnun á því hvað tengir og sameinar tvo einstaklinga, hvenær hægt er að brúa bilið á milli þeirra og hvenær bilið er einfaldlega of stórt. Það sem einkennir rómantískar bækur Alexis Hall fyrst og fremst eru frábærar lýsingar á nánd, sérstaklega góð persónusköpun og húmor sem fær mann til þess að hlæja upphátt. Hér eru þrjár uppáhaldsbækurnar okkar eftir hán:

A Lady for a Duke

I cannot meet him as a stranger. But he has never known me as myself.

Hvað þarf trans kona á 19. öld að gera til þess að geta lifað sínu rétta lífi? Árið er 1815. Viola nýtir sér glundroðann í orrustunni við Waterloo, yfirgefur besta vin sinn, lætur sig týnast og skapar sér nýtt líf sem kona – án allra titla og auðæfa. Nokkrum árum síðar krefst húsfreyja hennar að hún fari með henni á setur hertogans Gracewood, til þess eins að uppgötva að hann er fullkomlega niðurbrotinn yfir andláti besta vinar síns. Getur hún sagt honum sannleikann? Mun Gracewood þekkja hana aftur? Trans aðalpersóna, heitur hertogi, neysla, þunglyndi og sjóðheit ást – allt í 19. aldar búningi.

For Real

I want to give him everything, and the things I can’t give, I want him to take.

Laurie er bráðalæknir á fertugsaldri sem er orðinn langþreyttur á kink-senunni í London. Hann hefur fyrir löngu gefist upp á því að finna ástina aftur, enda hefur hann verið í sex ára samfelldri ástarsorg. Toby er ungur og algjörlega óreyndur á senunni en veit nákvæmlega hvað hann vill. Við tekur ástarsaga þar sem BDSM spilar stórt hlutverk í því að sýna nándina sem verður til á milli þessara ólíku einstaklinga.* Bókin er troðfull af angist, kynlífi og ást sem brúar bil sem virðast allt of stór í fyrstu, enda er hún hluti Spires-seríunnar. Hinar bækurnar í þessari laustengdu seríu heita Pansies, Waiting for the Flood og Glitterland. Við mælum með þeim öllum. 

*Varúð, þessi bók er hot as hell. 

Boyfriend Material

I think what you’re underestimating here is how much better I can get and still be a complete disaster.

Lucien O’Donnell er sonur tveggja rokkstjarna frá níunda áratugnum og eilíft viðfang bresku slúðurpressunnar. Eftir birtingu enn annarrar óheppilegrar myndar af honum þar sem hann liggur eins og dauðadrukkinn á götunni með kanínueyru er hann á barmi þess að missa vinnuna. Eina leiðin sem hann sér út úr því er að kynnast manni sem nýtur virðingar og reyna með því að bæta ímynd sína. Úr verður að hinn kaótíski Luc og strangi lögmaðurinn Oliver Blackwood, sem Luc hefur raunar aldrei þolað, þykjast vera saman. En hvenær eru þeir að þykjast og hvenær er tengingin raunveruleg? Frábærlega skemmtileg bók með frekar ótrúverðugum en óendanlega fyndnum aukapersónum, hinsegin vinahóp sem við viljum vera í og ástarsögu sem er jafn fyndin og hún er hjartnæm. 

Já, við lesum alveg eftir annað fólk

Legends and Lattes – Travis Baldree

It was like drinking the feeling of being peaceful. Being peaceful in your mind. Well, not if you have too much, then it’s something else.

Þið hélduð kannski að Helga Haraldsdóttir, formaður Hinsegin daga, væri mesta butch sem hægt væri að finna. En nei, elsku börn, við þurfum að hryggja ykkur með því að það er hún Viv. Viv er nefnilega orki, hávaxin og herðabreið, grænleit og brúnaþung, með vígtennur fyrir allan peninginn. Eftir að hafa fengið nóg af ævistarfinu sem hausaveiðari og skrímslamorðingi, ákveður Viv að slíðra sverðið sitt, Náttbana, í síðasta skipti og opna kaffihús. Er eitthvað krúttlegra en butch orki að hella upp á kaffi? Hvað þá þegar ástin bankar upp á og biður um einn bolla. Fortíðin á það þó til að flækja málin og ekki er allt sem sýnist þegar aldagamlir töfrar eiga í hlut. Ekki missa af þessum lattelepjandi orka og leit hennar að hinum fullkomna kaffibolla og hinu friðsæla lífi!

You Made a Fool of Death with Your Beauty – Akwaeke Emezi

To hell with what trouble this would bring, she was alive.

Feyi Adekola er nígerísk-bandarísk myndlistarkona sem er enn í sorgarferli eftir sviplegt andlát eiginmanns síns. Hún er ekki tilbúin til að finna ástina á ný en er þó að stíga lítil skref í þá áttina. Þegar hún fær tækifæri til að sýna list sína á ónefndri karabískri eyju kynnist hún Alim. Bókin er ástarsaga tvíkynhneigðrar konu og tvíkynhneigðs karls, þar sem 19 ára aldursmunur, sameiginleg reynsla af því að missa maka og siðferðileg álitaefni (Alim er faðir næstum-því-kærasta Feyi, jæks) leika lykilhlutverk. Úr verður þessi óvenjulega hinsegin ástarsaga sem er bæði átakanleg og falleg.

One Last Stop – Casey McQuiston

Jane is spun sugar. A switchblade girl with a cotton-candy heart.

Það eru til margir rómantískari staðir en neðanjarðarlestir New York-borgar en eins og svo oft áður spyr ástin hvorki um stað né stund. Hinni 23 ára gömlu August Landry finnst ástin vera til trafala og gefur ennþá minna fyrir hið yfirnáttúrulega. Svo hittir hún Jane Su. Jane á leðurjakka, Jane er fyndin, Jane er lesbía. Jane er með öðrum orðum allt það sem hin tvíkynhneigða August þarf í líf sitt. En þegar August kemst að því að Jane hefur verið föst í sömu neðanjarðarlestinni frá því á áttunda áratugnum eru góð ráð dýr. Stórskemmtileg og seiðandi ástarsaga með yfirnáttúrulegu ívafi, stútfull af fjölbreyttum hinsegin persónum og hinsegin menningu. Við mælum líka með Red, White & Royal Blue og The Pairing (sem kemur út 4. ágúst) frá sama höfundi!