Beint í efni

Af kynslóðum

Hinsegin samfélagið er merkilegt að því leyti að þar finn ég minna fyrir kynslóðabili en í öðrum hópum. Það er eins og þessi sameiginlegi hinsegin strengur bindi okkur saman á þann hátt að við erum eitt. Ég á ekki sams konar samtöl, vináttu og samskipti við mér yngra fólk úr heimi gagnkynhneigðra, þar virðast öll bundin sinni kynslóð með skýrari hætti.

Því er hins vegar fjarri að þetta sé alltaf raunin. Stundum verða skil kynslóðanna æpandi og þá er erfitt að sjá að við eigum nokkuð sameiginlegt.

Byrjum á okkur gamlingjunum. Í okkar hópi er því miður algengt að heyra fólk býsnast yfir hvernig allt hafi nú breyst. Það sé búið að eyðileggja Samtökin ‘78 með alls konar vitleysu sem þekktist ekki í gamla daga og þessir krakkar nú til dags gangi að því sem vísu að ýmis réttindi séu í höfn. Þau geri sér alls ekki grein fyrir öllum þeim fórnum sem þurfti að færa til að tryggja mannréttindi okkar. Þeirra barátta snúist um kynhlutlausar merkingar á klósetthurðum, þau séu búin að finna upp alls konar kynsegin og hinsegin skilgreiningar sem enginn geti hent reiður á og við, góðu gömlu lesbíurnar og hommarnir, séum nánast útlæg úr furðuheimi þeirra. Var það til þessa sem var barist? Til þess að þessir krakkar gætu bara gert allt sem þeim dettur í hug?

Í hvert skipti sem við sjáum unga hinsegin manneskju skilgreina sig nákvæmlega eins og hún vill og biðjast ekki afsökunar á neinu þá eigum við að fyllast stolti: „Sjáðu bara hverju barátta mín skilaði! Hán hefur frelsi til að vera hán sjálft!“

Til þess var barist

Stutta svarið er auðvitað: Já! Já, það var nákvæmlega þess vegna sem við börðumst, til þess að við fengjum réttindi og til að þau réttindi yrðu sjálfsagður og órjúfanlegur hluti af réttindum þess hinsegin fólks sem á eftir okkur kemur. Í hvert skipti sem við sjáum unga hinsegin manneskju skilgreina sig nákvæmlega eins og hún vill og biðjast ekki afsökunar á neinu þá eigum við að fyllast stolti: „Sjáðu bara hverju barátta mín skilaði! Hán hefur frelsi til að vera hán sjálft!“ Þetta hefði verið óhugsandi hér í gamla daga þegar við vorum ekki einu sinni búin að móta hugsunina, hvað þá orðin yfir allan hugsanlegan fjölbreytileika mannlífsins.

Greinarhöfundur eldist eins og aðrir og er hér með fjörutíu ára millibili. Fyrri myndin er tekin 1984 en seinni myndin 2004.

En mörg okkar gleðjast ekki heldur ergja sig á að ekki skuli lengur vera hægt að fara og hitta örfáa vini undir merkjum Samtakanna ‘78, félags lesbía og homma á Íslandi. Í þá gömlu, „góðu“ daga. Sá tími er af einhverjum ástæðum sveipaður rósrauðum bjarma. Auðvitað var samheldnin og vináttan undurfögur og svo gríðarlega mikilvæg þegar okkur leið ekki bara eins og heimurinn væri allur á móti okkur heldur var hann það í raun, með örfáum undantekningum. En vill einhver skipta og fara aftur til þessara ára? Áranna þar sem við þorðum ekki að vera við sjálf af ótta við að missa vinnuna, íbúðina, vinina, fjölskylduna? Auðvitað vill það enginn. Kannski hafa einhverjir gleymt hversu ömurlegt þetta var? Það fólk getur bara kynnt sér stöðu trans fólks í dag, það ætti að nægja til að kippa þeim áratugi aftur í tímann. Það er barið á trans fólki með öllum gömlu fordómunum sem nú eru endurnýttir, enda er ungt trans fólk yfirleitt mun meðvitaðra um söguna en aðrir hinsegin hópar af sömu kynslóð.

Breyttir tímar

Við gamlingjarnir þurfum að tileinka okkur meira örlæti og þakklæti yfir að hafa átt þátt í að skapa betri heim fyrir okkur öll, líka þau sem við skiljum ekki. Það er í fínu lagi, óskiljanlegt fólk hefur ekkert minni tilverurétt. Breytt Samtök eru barn síns tíma, það blasir við að Samtökin sem við þekktum fyrir áratugum væru undarleg tímaskekkja í dag. Þar er einfaldast að benda aftur á trans fólk sem dæmi, það sást hvergi á upphafsárum Samtakanna. Ætlum við, með alla okkar reynslu, að reyna að halda því fram að það hafi ekki verið til?

Þau sem yngri eru mega þá á móti hætta að pirra sig á einsleitni okkar sem eldri erum. Við, þessar sís lesbíur og hommar, erum alveg ágætlega sátt í okkar skinni og fæst finna hjá sér þörf til að breyta einhverju. Hommar og lesbíur. Lesbíur og hommar. Virkar kannski einfalt núna en samt gríðarlegt átak fyrir okkur mörg að komast þangað á sínum tíma.

Sýnileiki umfram allt

Við þurfum ekki að lesa lengi í sögu okkar til að fá það staðfest hversu mikið átak þetta var. Þess vegna er undarlegt þegar hluti hinsegin samfélagsins áttar sig ekki á mikilvægi þess að halda baráttunni áfram og tryggja sýnileikann sem allra mest. Þetta á því miður bæði við um eldra og yngra hinsegin fólk, enda aldurinn einn og sér ekki trygging fyrir því að fólk skilji mikilvægi sögunnar og sýnileikans. 

Þetta var sérstaklega áberandi í nýliðinni kosningabaráttu fyrir forsetakosningar. Sú staðreynd, að þarna gætum við fyrst þjóða kosið okkur samkynhneigðan forseta, skipti sumt hinsegin fólk allt í einu litlu eða engu máli. Sýnileikinn, þessi grundvallarforsenda tilveru okkar og réttinda, var allt í einu bara lítill hluti af stóru pælingunum um valdsvið forsetans – sem var auðvitað blásið svo út að ætla mætti að við værum að kjósa okkur einvald til næstu aldar.

Við verðum, hverrar kynslóðar sem við erum, að halda vöku okkar gagnvart þeim sem reyna að sannfæra okkur um að við höfum náð fullum réttindum sem aldrei verða af okkur tekin.

Skiptir reynsluheimur og sýnileiki hommans okkur ekki máli? Erum við þar stödd, hinsegin fólk? Bara á sama stað og „jákvæða“, „frjálslynda“ og „umburðarlynda“ gagnkynhneigða fólkið, sem segist engan mun sjá á fólki, hver sem kynhneigð þess er? Auðvitað er fólki frjálst að velja sér frambjóðanda en þau rök sem margt hinsegin fólk dró fram fyrir því að kjósa ekki hommann gengu þvert á mikilvægi sýnileikans. Fyrir 44 árum kaus margt fólk Vigdísi þrátt fyrir að vera ekki sammála hverju orði sem frá henni kom því að það áttaði sig á mikilvægi þess að kjósa konu. Ég hef sjaldan orðið meira hissa í síðari tíð eins og nú fyrir síðustu forsetakosningar en kenni um meðvitundarleysi fólks um söguna. Hefur markmið okkar verið að verða eins og allir aðrir eða er það að fá fulla viðurkenningu mannréttinda þrátt fyrir að við séum hinsegin? 

Við verðum, hverrar kynslóðar sem við erum, að halda vöku okkar gagnvart þeim sem reyna að sannfæra okkur um að við höfum náð fullum réttindum sem aldrei verða af okkur tekin. Þær raddir eiga ekki að hljóma í okkar hópi, við eigum að vita manna best að réttindi geta verið skert, þau geta horfið. Þess vegna er sýnileikinn áfram okkar sterkasta vopn. Og þess vegna eru Hinsegin dagar svo mikilvægir – fyrir allar kynslóðir.