byrjun sumars sendi útgáfufyrirtækið Palgrave-MacMillan í New York frá sér bók á ensku sem er fyrsta heildaryfirlit um upphaf baráttu okkar á liðinni öld. Bókin nefnist Queering Iceland: Activism and the Politics of Public Pedagogy 1975-2000. Aðalhöfundur hennar er Jón Ingvar Kjaran, prófessor á menntavísindasviði við Háskóla Íslands, en meðhöfundar að verkinu eru Mohammad Naeimi og Þorvaldur Kristinsson.

Eins og undirtitill bókarinnar ber með sér – Activism and the Politics of Public Pedagogy – leggja höfundar aðaláherslu á það hvernig hommar og lesbíur beittu fræðslustarfi, útgáfu, upplýsingum, áróðri og opinberum sýnileika til að vinna land á fyrstu árum hreyfingarinnar og afla þannig málstað sínum fylgi á þeim árum þegar megnir fordómar og andleg einangrun ríktu í íslensku þjóðfélagi.
Bókin sækir heimildir sínar í ýmsar áttir. Að nokkru leyti styðjast höfundar við skjalasafn Samtakanna ‘78 sem varðveitt var í tvo áratugi á Borgarskjalasafni en nú á Þjóðskjalasafni Íslands. Þá sækja þeir í ótalda útgefna texta í dagblöðum og tímaritum, munnlega vitnisburði aktívista sem lifðu þessa tíma svo og kvikmyndir Hrafnhildar Gunnarsdóttur sem varða þessa sögu. Minningar þeirra sem lifðu þessa tíma og enn lifa „er ómetanlegur styrkur í okkar fræðivinnu,“ segir Jón Ingvar Kjaran, „og þar má nefna að einn þriggja höfunda, Þorvaldur Kristinsson, var á þeim árum sem um ræðir öflugur liðsmaður hreyfingarinnar og raunar lengi síðan því að hann lagði starfinu lið á einn eða annan hátt í þrjátíu ár.“
„Sérstaða bókarinnar Queering Iceland,“ segir Jón Ingvar Kjaran, „felst einkum í því að henni er ekki ætlað að miðla þeirri kunnuglegu sögutúlkun að saga hinsegin fólks felist í stöðugri framþróun – frá ofsóknum og niðurlægingu til sátta og virðingar. Það er sú saga sem síðar hefur víða verið sögð á Norðurlöndum. Að norrænar þjóðir hafi ratað greiða leið til mannvirðingar og jafnræðis, auðveldlega og án teljandi átaka. Þar er litið fram hjá því hve dýrkeypt sú barátta var sem loks birtist í þeim framförum sem við þekkjum í dag.
Hér er aftur á móti leitast við að draga fram hve sagan er flókin og má þar nefna pólitíska ósigra, markvissar tilraunir valdamanna til að þagga niður í röddum samkynhneigðra, innri ágreining í hreyfingu þeirra, að ógleymdu því áfalli sem alnæmi reyndist hópnum. Hér kjósum við að íhuga og ræða þá hægfara viðleitni sem fólst í því að breyta viðhorfum í örríkinu Íslandi. Sú viðleitni tók á sig margvíslegar myndir – ótaldar samræður við stjórnmála- og embættismenn, lítil blaðagrein hér, fámenn mótmæli þar, ellegar fyrsti vísir að félagslífi til að styrkja samstöðu hópsins. Allt þetta skilaði málstað hinsegin fólks áleiðis, skref fyrir skref, en það gerðist ekki án andstöðu, þöggunar, ósigra og vonbrigða.“
Hinsegin dagar í Reykjavík óska höfundunum þremur til hamingju með þessa nýju bók. Queering Iceland er fagnaðarefni því að þar er í fyrsta sinn á heildstæðan hátt miðlað mörgum mikilvægum þáttum í sögu okkar. Mikilvægt er að slíkt rit birtist á ensku því að þannig er sú þekking, sem til þessa hefur að mestu verið bundin Íslandi og íslenskum lesendum, nú tiltæk fróðleiksfúsum á alþjóðlegum vettvangi.
Höfundar bjóða ykkur hjartanlega velkomin í útgáfuhóf í sal Samtakanna ‘78, Suðurgötu 3, föstudaginn 22. ágúst frá kl. 16:00-18:00. Boðið verður upp á léttar veitingar.