Unnur Þöll Benediktsdóttir er þrítug hinsegin kona sem stefnir á að útskrifast sem heilabilunarráðgjafi í lok árs. Hún hefur komið víða við á ævinni, meðal annars í pólitík, er með grunnpróf í sálfræði og starfar við heilabilunarráðgjöf og svo er hún bæði varaformaður blindrafélagsins og daufblindrafélagsins, auk þess sem hún á tvo ketti og kærustu.
„Það sem mig langaði svolítið að tala um er að sem fötluð kona þá hefur verið erfiðara fyrir mig að koma út úr skápnum sem fötluð kona en sem hinsegin kona sökum fordóma og hvernig samfélagið kemur fram við fatlað fólk,“ segir Unnur en það er upplifun sem er mjög einstaklingsbundin. Meðal fatlaðs og hinsegin fólks er oft mjög misjafnt hvernig fólki er tekið og hvort það er fötlunin eða hinseginleikinn sem samfélagið á erfiðara með að sætta sig við.
Unnur útskýrir frekar hvernig þetta er í hennar tilfelli og tekur fram að þar sem fötlun hennar sé ósýnileg geti verið að það hafi áhrif á viðtökurnar: „Þegar fólk er með ósýnilega fötlun eins og ég, en ég er lögblind og heyrnarskert, sem sagt daufblind, þá er maður stundum að fela það. Og ég hef í gegnum tíðina valið hverjum ég segi að ég sé fötluð – ég segi það ekki hverjum sem er. En með hinseginleikann minn, þá vita það allir, ég er svo rosalega opin með það. Allir sem þekkja mig og eða eru með mig á Facebook vita það strax. Allir sem vinna með mér. Ég hef aldrei fundið hjá mér þörf til að fela það eða halda því frá einhverjum.“
Það er svolítið annað með fötlunina
En hvernig var það að alast upp fötluð og hinsegin, og hvaða áhrif hefur uppvöxturinn á hvaða kona Unnur er í dag? „Þegar ég var barn var mér gjörsamlega útskúfað fyrir að vera fötluð. Ég elst upp í litlu bæjarfélagi, á Hvolsvelli, þar sem allir þekkjast, og krakkarnir lögðu mig í mikið einelti. Ég áttaði mig ekki á því að ég væri hinsegin fyrr en seinna. Þegar ég var komin í menntaskóla á Laugarvatni kom ég út úr skápnum, fyrst sem tvíkynhneigð og núna skilgreini ég mig sem hinsegin og mér fannst allir taka því vel. Foreldrar mínir studdu mig frá því að ég sagði þeim frá þessu og tóku mér mjög vel.

En það er svolítið annað með fötlunina því að ég lærði það mjög snemma og vandi mig á að fela hana algjörlega. Ég geng alltaf með linsur. Ég fer ekki út úr húsi með þykku gleraugun mín og ég á staf, blindrastaf, en ég er ekki mikið með hann, þótt hann gagnist mér, því að mér finnst svo óþægilegt að merkja mig sem fatlaða. Og ég áttaði mig á því að ég var eiginlega að leggja sjálfa mig í áframhaldandi einelti – ég var að banna sjálfri mér að vera eins og ég er og vera sýnilega fötluð. Það er auðvitað vegna þess að ég lærði svo snemma að fötlunin gerði það að verkum að ég væri ekki samþykkt. Svo ég hélt áfram að fela hana.
Eins og þegar ég var í náminu uppi í háskóla, þá til dæmis passaði ég mig á að loka alltaf stækkunarforritinu sem ég er með til að geta lesið á skjáinn ef einhver gekk framhjá. Ég var svo hrædd við að fá neikvæð viðbrögð og vera útskúfað ef einhver sæi að ég væri fötluð. Ég er svona að reyna að kenna mér að ég megi vera fötluð, að ég megi taka pláss,“ segir Unnur og brosir.
Vettvangur fyrir fatlað hinsegin fólk
„Og það merkilega er að mér finnst mér best tekið sem fatlaðri konu í hinsegin samfélaginu. Þar finnst mér fólk svo umburðarlynt því það hefur sjálft þurft að takast á við erfiðleika – því hefur verið útskúfað fyrir að vera öðruvísi – og þar finnst mér ég mæta skilningi og vera boðin velkomin. Ég er í hinsegin kórnum, hef verið þar í rúmlega þrjú ár, og ég fattaði eiginlega ekki hversu mikið ég þurfti á svona hinsegin félagsskap að halda þar sem ég get verið algjörlega ég sjálf og verið alveg örugg.“
Talið berst að samtvinnun mismunabreyta og ég spyr Unni að því hvort hún þekki margt fatlað hinsegin fólk. „Sko, nei, í rauninni ekki, ekki svo ég viti til, en ég held að það séu ótrúlega margir sem maður veit ekki af. Sem eru kannski með ósýnilegar fatlanir. Ég stofnaði hóp fyrir hinsegin fatlað fólk til að hittast og við erum búin að halda einn hitting í húsnæðinu hjá Samtökunum ‘78 – og þar var einmitt fólk að koma í fyrsta sinn á viðburð hjá Samtökunum af því að því hafði alltaf fundist það of fatlað til að geta mætt á viðburði, sagði það mér þá.
Og núna erum við með Facebook-hóp en við erum bara átta í hópnum. Og auðvitað eru miklu fleiri þarna úti. Ef fólk vill finna hópinn þá heitir hann Hinsegin fatlað fólk. Við viljum endilega fá fleiri með í hópinn en við erum aðallega að skapa vettvang fyrir fatlað hinsegin fólk að deila reynslu sinni og tengjast og það er ekkert aldurstakmark. Öll eru velkomin!“
