Beint í efni

Mörgæsir og aðrir vandræðasteggir

Breski læknirinn George Murray Levick (1876-1956) var hluti af hinum ólánlega heimskautaleiðangri landa síns, Roberts Falcons Scotts, á suðurpólinn 1910-1913. Það sem helst brann á Levick var þó ekki að komast fyrstur á einhvern punkt á heimskortinu, heldur vildi hann stunda rannsóknir á framandi fuglalífi þarna á ísköldum hjara veraldar.  

Suðurskautssumarið 1911-1912, á meðan yfirboðari hans, Scott, var að berjast á pólinn, dvaldi Levick á Adare-höfða á Viktoríulandi á austanverðu Suðurskautslandinu, þar sem eru stærstu varpstöðvar aðalsmörgæsarinnar (Pygoscelis adeliae). Lítið var vitað um líf og atferli mörgæsa á þessum tíma enda ekki hlaupið að því að komast á afskekkta heimahaga þeirra. Levick var manna fyrstur til að fylgjast með samfélagi aðalsmörgæsanna á Adare-höfða og enn í dag er hann sá vísindamaður sem dvalið hefur lengst á meðal þeirra þar. 

Ítarlegar lýsingar Levicks á atferli mörgæsanna komu svo út í bók, tímamótaverki í mörgæsafræðum, Antarctic Penguins: A Study of Their Social Habits árið 1914. Levick segir frá því þegar fuglarnir fjölmenna til varpstöðva, hitta maka sína, verpa og liggja á eggjum. Hann segir einnig frá ungum mörgæsakörlum sem ekki fundu sér maka og hann nefndi „vandræðasteggi“ (e. hooligan cock). Þeir héngu í útjaðri varpstöðvanna og voru þar til ýmissa vandræða, öbbuðust upp á og jafnvel drápu unga annarra fugla og frömdu aðra verknaði sem, líkt og Levick skrifaði, „væru glæpir af því tagi að þeir ættu engan stað í þessari bók“. 

Hneyksli á varpstöðvum

Meira fengu lesendur hans ekki að vita. Það var ekki fyrr en nær hundrað árum eftir útkomu bókarinnar, árið 2012, að í kompu á Náttúruminjasafninu í London fannst sérstakur kafli sem Levick hafði skrifað um kynhegðun aðalsmörgæsa en útgefendur hans á safninu höfðu ákveðið að gæti alls ekki komið fyrir almenningssjónir. Kaflinn hafði verið tekinn út úr bókinni og einungis prentaður sem bæklingur í hundrað eintökum fyrir útvalda fræðimenn sem stjórnendur Náttúruminjasafnsins mátu sem svo að gætu höndlað þær hneykslanlegu upplýsingar sem þar var að finna. 

Pólfarinn Robert Falcon Scott (til hægri) bregður á leik með aðalsmörgæsum á Suðurskautslandinu. Bretum ofbauð óeðli fuglanna.

Meðal þess sem Levick hafði orðið vitni að var að mörgæsasteggir lögðust með öðrum steggjum og stunduðu sjálfsfróun. Einnig hafði hann séð fuglana stunda afbrigðilegri og ofbeldisfyllri kynhegðun: vandræðasteggir réðust á aðra fugla og þvinguðu þá til kynmaka, lögðust á unga sem og hræ mörgæsa sem lágu úti á ísnum. Stundum var Levick sjálfur, alinn upp á tíma Viktoríu drottningar, raunar svo sjokkeraður yfir því sem hann varð vitni að á varpstöðvunum að hann fann sig knúinn til þess að nota dulmál í sinni eigin stílabók. Hann skrifaði þá á ensku en með gríska stafrófinu. 

Hundrað eintök voru prentuð af forboðnum bæklingi hans um kynhegðun aðalsmörgæsa en einungis eitt eintak hefur varðveist. Óvíst er hvað varð um hin. Kannski hefur hinum útvöldu fuglafræðingum ofboðið það óeðli sem þar kom fram og kastað bæklingunum beint í arineldinn. Loks 2012 kom texti bæklingsins út í heild sinni í fræðiritinu Polar Record.

Fyrirmyndarpabbar

Að samkynhneigð fyrirfinnist meðal annarra dýra í dýraríkinu en mannsins er orðin almennt viðurkennd staðreynd í dag, svo sem samkynhneigð meðal mörgæsa. Tveir hettumörgæsasteggir, Roy og Silo, í dýragarðinum í Central Park í New York vöktu heimsathygli árið 1998 þegar þeir fóru að draga sig saman og sýna hefðbundna mökunartilburði hettumörgæsa (Pygoscelis antarcticus) gagnvart hvor öðrum. 

Roy og Silo á góðri stundu. Seinna skildu leiðir og Silo tók saman við kvenkyns mörgæs, Scrappy. Síðan hafa fjölmörg samkynja mörgæsapör orðið til í dýragörðum heimsins.

Árið eftir reyndu Roy og Silo að taka að sér steinhnullung og lágu á honum sem hann væri egg. Það kom auðvitað enginn ungi úr honum en dýragarðsverðir létu Roy og Silo fá egg frá öðru pari sem gat ekki sinnt sínu eggi. Roy og Silo skiptust svo á að liggja á egginu og þegar ungi klaktist úr egginu ólu Roy og Silo hann upp sem sinn eigin. Unginn, kvenfugl, hlaut nafnið Tango. Roy, Silo og Tango voru mjög vinsæl meðal gesta dýragarðsins í New York og urðu til þess að vekja athygli á því að samkynhneigð þekkist ekki aðeins hjá mannskepnunni heldur einnig meðal mörgæsa og fleiri dýrategunda. 

Roy og Silo gerðust aldrei uppvísir að neinu óeðli eða ofbeldi að hætti frænda þeirra aðalsmörgæsanna og voru til fyrirmyndar í alla staði. Það dugði þó ekki til þess að þeir yrðu ekki einnig fórnarlömb ritskoðunar. Árið 2005 kom út barnabók í Bandaríkjunum um Roy og Silo í New York og ungann þeirra, And Tango Makes Three, eftir Peter Parnell, Justin Richardson og Henry Cole. Bókinni var ætlað að kynna fjölbreytileika dýraríkisins fyrir ungum lesendum en hún varð fljótt mjög umdeild meðal íhaldssamra Bandaríkjamanna sem þótti þetta allt saman mjög óviðeigandi. Hefur bókin því verið hátt á lista yfir þær bækur sem helst eru bannaðar á bandarískum skólabókasöfnum og um árabil verið með umdeildustu bókum í Bandaríkjunum.