Í leit að nánd, spennu eða aukinni kynferðislegri ánægju sækja sífellt fleiri í svokallað chemsex, þar sem kynlífi og vímuefnum er markvisst fléttað saman. Fyrirbærið er einkum þekkt meðal samkynhneigðra og tvíkynhneigðra karla en umræðan um það enn takmörkuð á Íslandi. Sérfræðingar segja mikilvægt að nálgast málefnið út frá lýðheilsu og skaðaminnkun fremur en fordómum.
Chemsex vísar til samkvæma þar sem vímuefni eru notuð í kynlífi til að draga úr hömlum, auka nautn og lengja þann tíma sem kynlíf er stundað. Algengustu efnin eru kristalmetamfetamín, mephedrón, GHB eða GBL og stundum kókaín. Ef samkvæmin standa yfir í langan tíma eru stinningarlyf einnig gjarnan notuð. Slíkar samkomur eða partý geta staðið yfir í marga klukkutíma eða jafnvel daga, þar sem svefn og næring sitja oft á hakanum.
Þótt chemsex hafi fengið aukna athygli á síðustu árum er fyrirbærið ekki nýtt. Á áttunda áratugnum tíðkuðust svokölluð „party and play“ eða „high and horny“ samkomur. Þróun og vinsældir stefnumótaforrita á borð við Grindr, Scruff og Sniffies gerir mönnum það auðveldara fyrir að skipuleggja og bjóða til partýs og gerir það öllu skilvirkara en bréfdúfur og vasaklútar fortíðarinnar. Samhliða hefur breytt staða hinsegin fólks og framfarir í HIV-forvörnum haft áhrif á kynlífsmenningu og samskipti innan samfélagsins.
Chemsex, kynsjúkdómasmit og mikilvægi forvarna
„Chemsex getur aukið hættuna á HIV og öðrum kynsjúkdómum en það eru til mjög árangursríkar leiðir til að draga úr þessari áhættu,“ segir Asa Radix, yfirlæknir transteymis fullorðinna og smitsjúkdómadeildar Landspítalans. Hann bendir á að á Íslandi sé Truvada í boði sem fyrirbyggjandi HIV-meðferð (PrEP), bæði sem dagleg meðferð og samkvæmt svokallaðri 2-1-1 aðferð fyrir þá sem nota lyfið eftir þörfum. Þá geti Doxy-PEP, sýklalyfjameðferð sem tekin er innan 72 klukkustunda frá kynlífi, dregið verulega úr hættu á sýkingum á borð við sárasótt, klamydíu og lekanda. „Reglulegar skimanir fyrir HIV og öðrum kynsjúkdómum skipta miklu máli svo að hægt sé að greina og meðhöndla sýkingar snemma, bæði fyrir einstaklinginn sjálfan og kynlífsfélaga hans.“
Asa bendir einnig á mikilvægi bólusetninga gegn lifrarbólgu B, HPV og mpox, auk smokkanotkunar og þess að nota ávallt hreinan sprautubúnað ef sprautað er í æð.

Meira en bara kynlíf?
Þrátt fyrir að chemsex sé oft tengt fíkn og heilsufarsvanda sýna erlendar rannsóknir að margir sem taka þátt upplifa það fyrst og fremst sem leið til að auka nánd, spennu eða félagsleg tengsl og eru ekki endilega í vímuefnavanda.
Á hinn bóginn getur langvarandi notkun haft alvarleg áhrif á líkamlega og andlega heilsu, aukið hættu á fíkn, geðrænum erfiðleikum og smiti af HIV og öðrum kynsjúkdómum. Þá benda rannsóknir til að skömm, fordómar og félagslegt álag sem fylgir því að vera hinsegin geti ýtt undir vímuefnanotkun.
Asa segir því mikilvægt að heilbrigðiskerfið sé betur í stakk búið til að mæta þessum hópi. „Vonin er að allir geti fengið fordómalausa þjónustu í trúnaði þar sem hægt er að ræða bæði vímuefnanotkun og kynheilbrigði án þess að óttast fordóma.“ Að hans mati þarf fyrst og fremst að efla þekkingu heilbrigðisstarfsfólks.
„Við þurfum að spyrja réttu spurninganna um chemsex. Það virðist enn vera tiltölulega nýtt fyrirbæri á Íslandi og heilbrigðisstarfsfólk hefur mögulega ekki þá þekkingu og færni sem þarf til að skima fyrir því og veita viðeigandi stuðning.“ Hann telur jafnframt mikilvægt að samþætta betur HIV-forvarnir, skimun og meðferð við kynsjúkdómum, geðheilbrigðisþjónustu og stuðning vegna vímuefnavanda.
Chemsex er heilbrigðismál, ekki siðferðisbrestur
Á Íslandi liggja enn takmarkaðar upplýsingar fyrir um umfang chemsex. Þó benda evrópskar rannsóknir til þess að hluti samkynhneigðra og tvíkynhneigðra karla hér á landi hafi reynslu af vímuefnanotkun í tengslum við kynlíf. Að mati sérfræðinga er því tímabært að afla betri gagna um stöðuna, bæði til að skilja umfangið og tryggja að þjónustan taki mið af raunverulegum þörfum fólks.
„Chemsex er algengara en margir gera sér grein fyrir og þögnin og fordómarnir geta verið skaðlegri en vímuefnin sjálf,“ segir Asa og bætir við að chemsex sé heilbrigðismál en ekki siðferðisbrestur. „Fólk stundar chemsex af mörgum ólíkum ástæðum, meðal annars vegna nándar, tengsla, ánægju eða sem leið til að takast á við erfiðleika. Fordómar gera fólki aðeins erfiðara fyrir að leita sér aðstoðar.“ Hann segir hlutverk heilbrigðisstarfsfólks vera að mæta fólki af virðingu og styðja það út frá eigin markmiðum.
„Við ættum reglulega að spyrja um vímuefnanotkun í tengslum við kynlíf á fordómalausan hátt, veita ráðgjöf um HIV og kynsjúkdóma og styðja einstaklinga óháð því hvort markmið þeirra sé að gera notkunina öruggari, draga úr henni eða hætta henni alfarið.“
Þótt chemsex geti verið jákvæð upplifun fyrir sum fylgir því alltaf ákveðin áhætta. Því skipta fræðsla, skaðaminnkun og aðgengi að fordómalausri þjónustu miklu máli. Með meiri þekkingu og opnari umræðu má draga úr skaða og auðvelda fólki að leita sér aðstoðar þegar þess er þörf.
Fyrir nánari upplýsingar, stuðning eða ráðgjöf má leita til Göngudeildar smitsjúkdóma (A3), Landspítalanum Fossvogi, í síma 543-6040. Ef þú þarft aðstoð við fíknivanda bendum við einnig á hjálparsíma Rauða krossins, 1717. Fjallað verður um chemsex á Regnbogaráðstefnu Hinsegin daga fimmtudaginn 6. ágúst klukkan 15:00 í Iðnó.
