Beint í efni

Kvikmyndakvöld með Faye Knús

Faye Knús er ein reyndasta og ástsælasta dragdrottning Íslands og hefur sannarlega sett mark sitt á íslensku dragsenuna. Undanfarin misseri hefur hún verið með vikulegar sýningar á Kiki og tekið þátt í Drag Brunch Iceland. Faye Knús er líka mikill kvikmyndaunnandi og hefur góðfúslega fallist á að taka saman lista yfir nokkrar helstu kvikmyndir sem öll ættu að sjá. 

Óvísindalegur listi Faye Knús yfir frábærar kvikmyndir með dragívafi

1. Victor/Victoria (1982)

Algjörlega ómissandi meistaraverk.

2. The Adventures of Priscilla, Queen of the Desert (1994)

Þessi mynd breytti heiminum.

3. Hairspray (1988)

Af því að Divine er DIVINE.

4. The Birdcage (1996)/La Cage aux folles (1978)

Báðar myndirnar eru frábærar og ég elska Broadway-söngleikinn jafnvel enn meira.

5. Torch Song Trilogy (1988)

Arnold: Hugsar þú *einhvern tímann* áður en þú talar? 
Alan: Nei. Af hverju? Gerir þú það?
Arnold: Iðulega. Það hjálpar til við að eyða tímanum á meðan þú talar.

6. Queens of the Dead (2025)

Hrein dásemd.

7. Some Like it Hot (1959)

Af hverju hefur þú ekki enn séð þessa?

8. Yentl (1983)

Af því að kyn er tilbúningur.

9. Connie and Carla (2004)

Kjánaleg og skemmtileg. Og kjánaleg.

10. Showgirls (1995)

Hver einasta sekúnda af þessum sora er drag.