Í ár fagnar Hinsegin félagsmiðstöðin tíu ára afmæli. Á þessum áratug hefur starfið vaxið úr því að vera sex vikna tilraunaverkefni, þar sem 15-20 ungmenni mættu á hverja opnun, í að vera ein stærsta félagsmiðstöð landsins, með yfir hundrað gesti á hverri opnun, og mikilvægur griðastaður hinsegin ungmenna. Í dag heldur félagsmiðstöðin, sem er samstarfsverkefni Reykjavíkurborgar og Samtakanna ‘78, til í Spennistöðinni við Barónsstíg. Starfsemin hefur meðal annars hlotið hvatningarverðlaun Mannréttindaráðs Reykjavíkur og verið tilnefnd sem fyrirmyndarverkefni („Best Practice“) í æskulýðsstarfi af Norrænu ráðherranefndinni.
Á bak við þennan árangur stendur Hrefna Þórarinsdóttir, sem hefur verið forstöðukona félagsmiðstöðvarinnar frá upphafi. Sjálf er Hrefna ekki hinsegin og er saga hinsegin félagsmiðstöðvarinnar því líka saga um það hvað bandamenn geta lagt af mörkum í baráttunni.
Upphafið
Saga hinsegin félagsmiðstöðvarinnar hófst árið 2016. Þá hafði Hrefna þegar starfað í tíu ár í félagsmiðstöðvum. Þáverandi yfirmaður hennar hringdi og bað hana að taka að sér tilraunaverkefni í samstarfi við Samtökin ‘78: að umbreyta því sem þá hét Ungliðahreyfing Samtakanna ‘78 í félagsmiðstöð fyrir hinsegin ungmenni.
„Ég sagði bara nei,“ segir Hrefna. „Ég sagði honum að hann yrði að finna einhvern annan, kannski einhvern úr hópi þess hinsegin fólks sem starfaði nú þegar í félagsmiðstöðvunum.“
Viðbrögðin komu henni sjálfri á óvart. „Mér fannst þetta eiginlega vera persónuleg árás. Heldur yfirmaður minn að ég sé hinsegin, fyrst hann er að biðja mig um þetta?“ Hún segist á þessum tíma hafa átt í baráttu við eigin innri fordóma, meðal annars óttann við hvað fólk myndi álykta um hana sjálfa ef hún tæki þetta að sér.
Það var svo í bílferð í sumarbústað sem henni snérist hugur. „Ég hugsaði: af hverju ætti ég, sem er búin að læra allt þetta og hef alla þessa reynslu, ekki að geta gert þetta alveg eins og hver annar? Hvaða máli skiptir eiginlega hvort ég sé hinsegin eða ekki, þegar ég hef þekkinguna og reynsluna sem ég get nýtt fyrir hinsegin börn og ungmenni?“
Efasemdir stjórnar Samtakanna ‘78
Hrefna sjálf var ekki eina manneskjan sem þurfti að sannfæra um að þetta væri rétta skrefið. Þegar hún loks samþykkti verkefnið þurfti hún líka að vinna sér traust stjórnar Samtakanna ‘78 og fleiri úr hinsegin samfélaginu, sem var að hennar sögn langt frá því sjálfgefið. „Ég man að ég þurfti svolítið að sanna mig fyrir stjórn Samtakanna,“ segir hún. „Þau voru náttúrulega að ráða til sín gagnkynhneigða konu, sem var alveg krefjandi fyrir þau, og ég þurfti að sanna að ég væri að koma af heilum hug inn í þetta verkefni þrátt fyrir að vera ekki sjálf hinsegin.“
Frá sex vikna tilraunaverkefni til 10 ára afmælis
Verkefnið átti upphaflega bara að standa í sex vikur. Hrefna átti að leiðbeina um hvernig mætti aðlaga ungliðahreyfinguna meira í átt að félagsmiðstöðvaramma og svo draga sig í hlé. Þess í stað fann hún fljótt að hún vildi byggja eitthvað varanlegt og tók meðal annars þá umdeildu ákvörðun að færa opnanir yfir á þriðjudaga, eina daginn sem engin önnur félagsmiðstöð borgarinnar var opin, svo að starfið skaraðist ekki við annað félagsstarf krakkanna og þau sem ekki vildu að bekkjarfélagar vissu hvert þau væru að fara gætu mætt í friði.
Vöxturinn kom hratt. Úr 10-20 krökkum fyrsta veturinn og upp í 70 ári síðar, sem reyndist langt umfram það sem húsnæði Samtakanna ‘78 á Suðurgötu réð við. „Sjötíu krakkar á Suðurgötunni var í raun galið dæmi,“ segir Hrefna. „Það var ótrúlega lítið rými fyrir svona stóran hóp. Við þurftum alltaf að hafa opið út til að teygja rýmið eins og hægt var, sama þó það væri fimm stiga frost.“
Haustið 2018 flutti starfið í Spennistöðina, þar sem það hefur átt sinn samastað síðan og mætingin hefur haldið áfram að aukast. Í dag er Hrefna í fullu starfi, með fjóra starfsmenn og hóp sjálfboðaliða sér við hlið.

Staðan í dag
Árið 2015 gerðu Samtökin ‘78 og Reykjavíkurborg formlegan þjónustusamning um að frístundamiðstöðin Tjörnin myndi reka félagsmiðstöð fyrir hinsegin ungmenni. Ári síðar hófst starfið sem Hrefna var fengin til að leiða. Framan af var reksturinn að mestu borinn uppi af sjálfboðaliðum úr hinsegin samfélaginu, enda hafði félagsmiðstöðin lengi vel aðeins einn fastan starfsmann á meðan aðrar hefðbundnar félagsmiðstöðvar höfðu mun fleiri launaða starfsmenn.
Í desember 2021 var tekin sú ákvörðun hjá Reykjavíkurborg að færa Hinsegin félagsmiðstöðina af Mannréttinda- og lýðræðisskrifstofu yfir til Skóla- og frístundasviðs, og um leið var fjárveiting til starfsins aukin. Sama ár hlaut félagsmiðstöðin hvatningarverðlaun mannréttinda-, nýsköpunar- og lýðræðisráðs Reykjavíkurborgar fyrir þróunar- og nýbreytnistarf sem eykur jafnræði og vinnur gegn margþættri mismunun.
Þrátt fyrir þessa formlegu viðurkenningu er félagsmiðstöðin enn sú eina sem er háð sjálfboðaliðum, á meðan aðrar félagsmiðstöðvar eru að fullu mannaðar með launuðu starfsfólki. Hrefna bendir sjálf á að þarna sé enn verk að vinna, ekki síst í ljósi þess að um viðkvæman hóp er að ræða.
Áhrifin hafa líka teygt sig út fyrir veggi Spennistöðvarinnar. Önnur sveitarfélög og félagsmiðstöðvar hafa á síðustu árum farið að bjóða upp á sambærilegt starf að fyrirmynd Hinsegin félagsmiðstöðvarinnar, meðal annars félagsmiðstöðvar í Grafarvogi með verkefninu „Hinsegyn“, í Kópavogi með Hinsegin Félkó og í Hafnarfirði með HHH. Ekkert þeirra verkefna hefur þó verið fest í sessi í viðkomandi sveitarfélögum og heyja þau því sína eigin baráttu fyrir stöðugri fjármögnun og mönnun.
Af hverju bandamenn skipta máli
Hrefna er ófeimin við að tala um hvers vegna hún, sem gagnkynhneigð kona, telur hlutverk sitt hafa gildi:
„Í dag veit ég að það skiptir engu máli hvort fólk er hinsegin eða ekki. Mér finnst í alvöru gaman þegar fólk heldur að ég sé hinsegin. Mér finnst ég þá einhvern veginn hluti af samfélaginu. Og mér finnst ótrúlega gaman að eiga samtöl við fólk sem heldur að ég sé hinsegin og fá að segja: nei, ég er gagnkynhneigð en ég er hundrað prósent stuðningsaðili við hinsegin samfélagið. Það er með því besta sem ég geri. Þetta verkefni er heppni lífs míns í starfi, þrátt fyrir að því hafi upphaflega verið nánast þröngvað upp á mig. Það hefur breytt öllu: hvernig ég vinn, hvað ég vinn við, hvernig ég tekst á við hlutina. Það hefur gefið mér málstað til að berjast fyrir.“
Hún tekur fram að stuðningur hennar snúist ekki um að þykjast tilheyra samfélaginu sjálf, heldur um að vera einlæg um hvaðan hún kemur:
„Það verður enginn hinsegin af því einu að fara á Hinsegin daga, sitja undir fræðslu frá Samtökunum ‘78, eða af því að börn í skólum fá slíka fræðslu. Þetta er svo miklu, miklu meira en það og það er einmitt það sem mér finnst ótrúlega gaman að ræða. Mér finnst mikilvægt að fólk viti að ég er gagnkynhneigð, einmitt til að útskýra þetta. Ég hef unnið innan hinsegin samfélagsins í tíu ár og er ekki „orðin“ hinsegin sjálf við það, ég hef ekki „smitast“, ef svo má að orði komast. Það er nefnilega galið að hugsa um þetta eins og einhvers konar smitsjúkdóm, eins og Covid eða faraldur, og í félagsmiðstöðinni fjölgar samt krökkum ár frá ári, sem sýnir hvað þetta er í raun fráleitur ótti.“
Það sem skiptir máli
Þegar Hrefna er spurð hvað haldi henni gangandi eftir tíu ár nefnir hún hvorki tölfræði né viðurkenningar, heldur litlu augnablikin sem hún verður vitni að á hverri opnun: börn sem koma inn brotin af fordómum og vantrausti og eru eftir eina eða tvær opnanir farin að hlaupa um með nýjum vinum og hinsegin fánann á bakinu. Hún nefnir sérstaklega börn sem hafa glímt við sjálfsskaða eða sjálfsvígshugsanir sem hafa í fyrsta sinn fundið samfélag og tilgang í hinsegin félagsmiðstöðinni.
„Það sem heldur mér líka gangandi er að við þurfum stöðugt að berjast fyrir tilverurétti okkar og ég er þrjósk og mikil baráttukona í eðli mínu. Mér finnst þetta eiga að vera sjálfsagður hluti af starfsemi félagsmiðstöðva borgarinnar, alveg eins og önnur félagsmiðstöðvastarfsemi, og ég ætla ekki að hætta að berjast fyrir því, jafnvel þótt ég verði áttræð og löngu komin á eftirlaun. Á þeim tíu árum sem ég hef unnið að þessu hef ég séð hvað þetta skiptir gífurlegu máli. Þetta er lífsbjargandi starfsemi sem skilar miklu bæði til krakkanna sjálfra og til samfélagsins í kring: foreldra, kennara og annarra starfsmanna félagsmiðstöðva. Þetta er í alvöru mikilvægasta verkefni sem ég hef tekist á við í lífinu.“
Áfram veginn
Á tíu ára afmælinu horfir Hrefna bæði um öxl og fram á veginn. Draumurinn er að festa í sessi stöður forstöðumanns og aðstoðarforstöðumanns, fjölga opnunum og geta þjónustað öll hinsegin börn og ungmenni landsins, óháð búsetu. „Ég veit að bæði ég sjálf og kerfið í kringum okkur getum gert meira. Börnin eiga það skilið.“
Hún segist ekkert vilja frekar gera. „Þetta er í alvöru skemmtilegasta fólkið sem ég vinn með og fyrir.“ En fyrst og fremst vill hún þakka þeim sem hafa gengið í gegnum starfið á þessum tíu árum: „Öll sú þekking sem ég hef á hinsegin samfélaginu kemur frá þeim sjálfum. Það er þeim að þakka að félagsmiðstöðin heldur áfram.“
