Beint í efni

Engin inntökuskilyrði – Orðsending frá hinsegin ungmenni

Mikilvægi þess að tala um hinseginleikann er ekkert nýtt, þannig komum við breytingum í gegn og gerum okkur sýnilegri í samfélaginu. En það þarf ekki að vera á opinberum vettvangi til þess að skipta máli.  

Þegar ég byrjaði í menntaskóla bjóst ég við að hinseginleikinn tæki meira pláss og að ég myndi þurfa að ræða hann mun meira en ég geri. En í stað þess að vera ein af (kannski) átta var ég orðin ein af fjölmörgum. Ég þurfti því ekki að vera að sanna mig eða ræða hinseginleika minn svo mikið. Ekki vegna þess að það sé skömmustulegt að vera hinsegin heldur frekar vegna þess að það þyki venjulegt, sem þýðir að ég þarf ekki að vera í stöðugri vörn eða uppreisn við neinn. Það er draumurinn ekki satt?  

Mynd: Alda Lilja

Eftir því sem leið á fyrsta árið fann ég þó meira fyrir því hvað ég saknaði þess að ræða hinseginleikann, ekki einungis vegna þess hvað þetta getur verið erfitt eða flókið í samfélaginu í dag, heldur líka um allt það sem er léttara og skemmtilegra. Eins og til dæmis að Chappell Roan hafi gefið út nýtt lag eða að það væri ný hinseginmiðuð bíómynd að koma út. Þessi samtöl reyndust vera mín helsta tenging við hinseginleikann: það sem minnti mig á að ég væri ekki ein og að annað fólk í kringum mig væri að upplifa svipaða hluti og ég.  

Þegar ég var fjórtán ára komu þættirnir Heartstopper út á Netflix. Það voru mín fyrstu kynni af efni sem var miðað að mér sem hinsegin ungmenni og í þeim gat ég speglað mig og mínar upplifanir. Þetta var í fyrsta skipti sem ég fann virkilega sterka tengingu við hinseginleikann og þetta er eitt af því sem ég tengi einna helst við í dag. Þegar ég ræddi þetta svo við vini mína á sínum tíma varð mér ljóst að ég væri ekki ein, heldur væru allir hinsegin unglingar að upplifa svipað. Ég er ekki ein.  

Þessi samtöl eru mismunandi fyrir okkur öll en það sem einkennir þau þó er að þau snúast um að miðla menningu og þekkingu sem sameinar okkur og minnir okkur á að það er fólk þarna úti sem skilur okkur. Þetta þarf ekki að vera flókið. Bara það að minnast á hinsegin tónlistarfólk eða bíómynd getur gert heilan helling. Það getur opnað glugga fyrir umræðu um upplifanir sem er oft erfitt að koma orðum að. Oft getur þetta líka verið eins konar leynivopn til þess að tengja við annað hinsegin fólk, eins og að spyrja stelpuna sem maður er skotin í hvort hún hlusti á Girl in Red eða Troye Sivan.  

Mynd: Alda Lilja

Að tala um hinsegin menningu og listir er ekki bara mikilvægt fyrir okkur sem erum hinsegin, heldur er það líka leið til þess að minna samfélagið á að við séum til og að við skiptum enn máli. Hinsegin listamenn eru þau sem eru nógu hugrökk til að berskjalda sig fyrir okkur öllum, til að sýna heiminum að við séum til.  

ATH: Að vera hinsegin er ekki áhugamál og það er ekki skylda að þekkja hinsegin menninguna eins og hún leggur sig til þess að vera hinsegin. Það gerir mann ekkert minna hinsegin að þekkja varla neitt. Það væri svolítið snúið ef við af öllum hópum færum að setja inntökuskilyrði, ekki satt? En oft getur það hjálpað manni að skilja sig og aðra betur og gefið tækifæri til að mynda tengsl við önnur sem eru hinsegin í kringum mann.