Beint í efni

Meira en bara tákn – Um myndbrot, merkingu og sameiginlegt rými

Það er athyglisverð þversögn fólgin í því hvernig við tölum um tákn. Oftar en ekki heyrum við sagt að eitthvað sé „bara tákn“, eins og þar með hafi tekist að gera lítið úr mikilvægi þess. En sagan bendir til hins gagnstæða. Samfélög hafa á öllum tímum reist minnisvarða, varðveitt helgimyndir, endurreist menningarminjar og deilt hart um það hvaða tákn eigi heima í almannarýminu. Enda eru tákn aldrei aðeins efnislegir hlutir. Þau geyma sameiginlegar minningar, hugmyndir og reynslu sem samfélög kjósa að halda á lofti.

Regnboginn er eitt slíkt tákn. Hann varð ekki að tákni vegna litanna sjálfra heldur vegna þeirrar merkingar sem hinsegin samfélagið hefur smám saman bundið við hann. Þá stendur hann ekki aðeins fyrir réttindabaráttu heldur einnig fyrir sýnileika. Hann minnir okkur á að hinsegin fólk á ekki aðeins tilverurétt í einrúmi heldur einnig í sameiginlegu rými samfélagsins. Það sem við sjáum kann að vera málning, ljós eða tau en það sem táknið geymir er langtum stærra en birtingarmynd þess.

Því skyldi það ekki koma á óvart að regnboginn verði ítrekað skotmark en á undanförnum árum hafa regnbogatákn hér á landi verið skemmd, málað yfir þau eða þau á annan hátt vanvirt. Nýlega var regnboginn á tröppum Grafarvogskirkju hulinn með íslenska fánanum en nokkrum árum áður var í tvígang krotað á sömu tröppur, annars vegar með „ANTICHRIST!“ og síðan með „LEVITICUS 20:13“. Gjörningarnir þá og nú eru ólíkir á yfirborðinu en undirliggjandi er sama hugsun. Því að það er auðvitað ekki málning á tröppum sem vekur hörð viðbrögð hjá andstæðingum regnbogans heldur sú merking sem ólíkir hópar leggja í hann.

Regnbogafánar voru skornir niður við Sjóminjasafnið á Hinsegin dögum 2022. Nýir fánar voru dregnir að húni samdægurs en þessi ræma var síðar skráð í safneign Borgarsögusafns. Mynd: Borgarsögusafn Reykjavíkur.

Í listasögunni hefur slíku fyrirbæri lengi verið lýst með hugtakinu myndbrot (e. iconoclasm). Við hugsum gjarnan um myndbrot sem eyðileggingu á styttum, altaristöflum eða helgimyndum en í grunninn snýst það um einfaldan sannleika: myndir hafa áhrif. Þær móta skilning okkar á fortíðinni, samfélaginu og okkur sjálfum. Þess vegna beinast átök ekki aðeins að fólki eða hugmyndum heldur einnig að þeim myndum sem gefa þessum hugmyndum sýnilegt form. Þegar mynd er hulin eða hún fjarlægð snýst það sjaldnast um yfirborðið eitt og sér. Það sem raunverulega er tekist á um er hvort sú merking sem myndin ber eigi rétt á sér í almannarýminu.

Í þessu felst jafnframt ástæða þess að fullyrðingar á borð við „þetta er bara fáni“ eða „þetta er bara málning“ hljóma svo innantómar. Þær biðja okkur um að horfa fram hjá aðstæðunum sem gáfu myndinni merkingu og einblína þess í stað á efnið. En tákn verða ekki til í tómarúmi. Merking þeirra mótast af samhengi, svo sem af því hver setur þau fram, hvar þau birtast og ekki síst hvað býr að baki. Þegar samhengi myndar er afmáð verður auðveldara að gera lítið úr verknaðinum sjálfum. Að því leyti felst til dæmis viss afneitun í því að halda því fram að umræðan nú snúist fyrst og fremst um íslenska fánann en ekki um regnbogann sem hvarf undir hann.

Tákn sem þessi gegna mikilvægu hlutverki í því hvernig samfélög sjá sjálf sig. Minnisvarðar, þjóðfánar, trúartákn og önnur tákn í almannarými varpa ekki aðeins ljósi á fortíðina heldur einnig á líðandi stundu og hver við erum. Regnboginn er orðinn hluti af þessu myndmáli. Hann krefst engra sérréttinda heldur minnir einfaldlega á að hinsegin fólk sé sýnilegur hluti samfélagsins, rétt eins og aðrir.

Þetta skiptir miklu máli fyrir hinsegin samfélagið, enda hefur sýnileikinn sjaldnast verið sjálfsagður heldur þvert á móti eitthvað sem hefur þurft að berjast fyrir. Lengst af var hinsegin tilvera bundin þögn, ósýnileika eða því að þurfa að lesa sjálf sig inn í sögur annarra. Það að sýna táknræna samstöðu með regnbogalitum breytir þeirri sögu ekki eitt og sér en það er til marks um samfélagslega viðurkenningu: að við séum velkomin. Táknið gerir okkur kleift að sjá okkur sjálf sem hluta af hinu sameiginlega rými, í stað þess að standa utan þess.

Þegar regnboginn er hulinn með öðru tákni hverfur máttur myndarinnar ekki úr rýminu. Ein mynd tekur einfaldlega við af annarri og með henni verður til nýtt samhengi og ný frásögn. Ágreiningurinn snýst því ekki um hvort almannarýmið sé staður fyrir tákn heldur hvaða tákn fái þar rými og hvaða merking eigi rétt á viðurkenningu. Í grunninn felur myndbrot þannig í sér vissa þversögn. Því að sá sem sér ástæðu til að mála yfir aðra mynd er um leið að viðurkenna að hún hafi áhrifamátt. Ef myndir skiptu hins vegar engu máli sæu myndbrjótar enga ástæðu til að setja sig upp á móti þeim.

Tákn eru auðveld skotmörk. Það þarf ekki nema málningardós eða fáein augnablik í skjóli nætur til að breyta þeim. En þau eru jafnframt lífseig. Ekki vegna þess að málning eða tau endist um aldur og ævi heldur vegna þess að samfélög ákveða aftur og aftur að endurnýja þá merkingu sem í þau er lögð. Þess vegna birtist regnboginn aftur og aftur. Ekki til þess að láta eins og ekkert geti eða hafi komið fyrir, heldur vegna þess að almannarýmið má ekki mótast af þeirri hugmynd að ógnanir eða skemmdarverk ráði því hver eða hvað fái að sjást. Þar með verður ákvörðunin um að leyfa öðrum ekki að taka yfir táknin staðfesting á því að merking þeirra verði ekki svo auðveldlega afmáð.