Leikhúsið og frelsi
Leikhúsið hefur löngum verið athvarf jaðarsettra einstaklinga og hinsegin fólks sérstaklega. Listformið hefur heillað þau sem vilja brjótast úr viðjum hversdagsins og leiksviðið verið rými tilrauna, jafnvel frelsis.
Þegar kemur að leiksviðinu gilda aðrar reglur, reglur sem eru til hliðar við raunveruleikann. Þessi hliðarheimur gefur einstaklingum tækifæri til að bregða sér í önnur hlutverk, jafnvel í önnur kynjahlutverk en þau sem þátttakendum var úthlutað við fæðingu.
Sviðslistasaga Íslands er samofin starfsemi leikfélaga nemenda og áhugafólks sem stundum fóru fram í samkynja rýmum á borð við Herranótt Menntaskólans í Reykjavík, þar sem eingöngu karlmenn tóku þátt í leiksýningum fram til ársins 1922, og kvenfélög, bæði í höfuðborginni og á landsbyggðinni.
Í þessari grein beinum við athyglinni að aldamótunum þarsíðustu þegar Reykjavík var að slíta barnsskónum, mikill uppgangur var í menningarstarfsemi höfuðborgarinnar og samkynja rými buðu frelsi fyrir konur og karlmenn til að bregða sér í óvenjuleg hlutverk.
Herranótt
„Skólapiltar Menntaskólans sýna á hverju ári einn sjónleik. Það er gamall siður, sem fylgt hefir skólanum frá því hann fluttist til Reykjavíkur frá Skálholti.“ (Morgunblaðið, 13. mars 1935).
Þessi setning birtist í elstu færslunni sem kemur upp á Tímarit.is þegar leitað er að orðinu „herranótt“ en hún birtist undir fyrirsögninni „Holberg-sýning skólapilta í kvöld“. Leiksýningar Menntaskólans í Reykjavík hafa gengið undir nokkrum nöfnum, ekki ólíkt skólanum en Herranótt er auðvitað þekktasta nafnið.
Herranótt rekur sögu sína allt til 18. aldar og jafnvel lengra aftur í tímann ef við víkkum skilgreiningu á orðinu leiksýning. Þess má geta áður en lengra er haldið að heildarsaga Herranætur hefur ekki verið skrifuð, einungis einstaka bókakaflar, blaðagreinar og hugleiðingar. Til eru fjölbreytt gögn um leikfélagið, sem starfar auðvitað enn í dag, varðveitt á skjalasöfnum og bókasöfnum landsins. Sömuleiðis hefur saga Menntaskólans í Reykjavík ekki verið fyllilega rannsökuð en þar ber þó að nefna ritröðina Saga Reykjavíkurskóla I-IV eftir Heimi Þorleifsson.
Þorsteinn Vilhjálmsson hefur rannsakað og skrifað um samkynja ástir nemenda í Lærða skólanum undir lok 19. aldar og stóð fyrir útgáfu Hundakæti: Dagbækur Ólafs Davíðssonar 1881-1884 sem kom út 2018. Ólafur (1862-1903) var á þessum tíma nemandi við skólann og skrifaði niður hugleiðingar sínar um daglegt amstur, þar á meðal tilfinningar sínar gagnvart samtíðarfólki sínu. Dagbækurnar voru fyrst gefnar út árið 1955 undir nafninu Ég læt allt fjúka, þá töluvert ritskoðaðar og eru skrif hans varðveitt á Landsbókasafni. Þorvaldur Kristinsson hefur sömuleiðis fjallað um dagbækur Ólafs.
Dagbækurnar eru einstakur vitnisburður um samkynja skólaumhverfi á Íslandi þar sem ungir skólapiltar tókust á við áður óþekktar tilfinningar og reyndu að feta sín fyrstu skref sem fullorðnar manneskjur. Í bókinni talar Þorsteinn um skólann sem „undantekningarrými í íslensku samfélagi“ þar sem nemendur fengu pláss til að sinna sjálfstæðum rannsóknum, njóta samvista hver með öðrum og frelsis, þó auðvitað innan marka.
Lærði skólinn var ekki einungis helsta menntastofnun landsins heldur tengist leiklistarsögu Íslands sterkum böndum. Herranótt var vettvangur fyrstu leikskálda Íslands, fæðingarstaður leikverka á borð við Nýársnóttina eftir Indriða Einarsson og Skugga-Svein eftir Matthías Jochumsson, þá kallað Útilegumennirnir.
En einu skal þó ekki gleyma, líkt og á skólabekknum var leiksviðið samkynja vettvangur. Eingöngu karlmenn léku í leiksýningum skólans, öll hlutverk. Stúlkur fengu ekki aðgang að skólanum fyrr en árið 1904 og léku ekki í leiksýningum fyrr en 1922. Þess má geta að starfsemi Herranætur lá niðri á árunum 1914 til 1922. Á leiksviðinu fengu skólapiltar tækifæri til að bregða sér í hlutverk kvenna og mótleikarar þeirra tjá ást sína til annarra drengja undir yfirskini gagnkynja ástar. Seinna meir fékk nemandinn Benedikt Antonsson tækifæri til að dulbúast sem frænka Charleys í samnefndu leikriti, meira um það leikrit síðar.
Áhugaverð undantekning á blönduðum leiksýningum tuttugustu aldarinnar er sérstök afmælissýning Herranætur árið 1962 þegar eingöngu karlmenn léku í afmælissýningu leikfélagsins á Útilegumönnunum eftir Matthías Jochumsson en þá voru 100 ár síðan leikverkið var sýnt undir formerkjum Kvöldfélagsins eða Leikfélags andans undir forustu Sigurðar Guðmundssonar málara.
En leiksýningar skólans höfðu ekki eingöngu áhrif á þátttakendur í leiksýningum heldur líka áhorfendur úti í sal. Árið 1957 tók listfræðingurinn og þáttagerðarmaðurinn Björn Th. Björnsson (1922-2007), sem sjálfur lék í Herranótt, viðtal við leikkonuna Gunnþórunni Halldórsdóttur (1872-1959) á heimili hennar að Amtmannsstíg 5 í tilefni 85 ára afmælis hennar. Með í för var leikarinn og leikstjórinn Lárus Pálsson (1914-1968), góðvinur hennar, og er viðtalið varðveitt í safni RÚV. Samtalið er stutt en gefur forvitnilega innsýn í líf Gunnþórunnar, sem bjó alla tíð á Amtmannstíg, þar af hálfa öld með Guðrúnu Jónasson (1877-1958), borgarfulltrúa.
Hennar fyrstu upplifanir í leikhúsinu voru á leiksýningum skólapilta en frammistaða Ingvars Sigurðssonar (óþekkt), kaupmanns, í leikriti sem hún man ekki hvað hét var þó sérlega eftirminnilegt. Hún rifjar kímin upp samtal við móður sína eftir leiksýninguna þar sem Gunnþórunn lýsir yfir: „Ósköp var hann Ingi falleg stúlka.“ Móðir hennar hváir: „Heldur þú að hann sé stúlka?“
Er undarlegt að ung og óreynd stúlka eigi bágt með að sjá muninn á milli leiksviðs og raunveruleikans? Það eina sem hún sér er falleg stúlka …
Leikfélag Reykjavíkur
„Leikurinn stendur og fellur með uppgerðar-frænkunni og hr. Sigurður Magnússon er lék Babbs, hélt leiknum uppi með mikilli snilld…“ (Þjóðólfur, 18. mars 1898, V. J.).
Þessi fyrstu kynni Gunnþórunnar af leikhúsinu áttu eftir að hafa mikil áhrif á líf hennar. Gunnþórunn Halldórsdóttir var einn af stofnendum Leikfélags Reykjavíkur árið 1897. Sérstaka athygli vekur leiksýningin Hjartsláttur Emils, einleikur líklegast skrifaður af Vilhelm Knudsen, þar sem Gunnþórunn fór með hlutverk Emils. Verkið var einungis sýnt einu sinni og fáar heimildir um uppsetninguna hafa komið í ljós en þó er til póstkort af Gunnþórunni í hlutverkinu, prentað af Guðrúnu Jónasson og líklegast selt í verslun hennar við Aðalstræti. Á póstkortinu er „Emil“ innan sviga sem vekur upp þær spurningar hvort um sé að ræða konu sem bregður sér í hlutverk karlmanns til að geta stundað nám eða hvort um sakleysislega tilviljun sé að ræða.
Ári seinna, 1898, tók leikfélagið farsa til sýningar sem átti eftir að verða vinsæll næstu áratugina. Frænka Charleys eftir Brandon Thomas er enskt gamanleikrit, frumsýnt í London 1892, sem fjallar um ástir og örlög þriggja háskólanema í Oxford sem leggja á ráðin um að fanga ástir yngismeyja og fá leyfi til að giftast þeim. Lykilþáttur í ráðabrugginu er að einn þeirra, sem heitir því stórkostlega nafni Fancourt Babberley lávarður, þarf að bregða sér í hlutverk frænku Charleys, sem heitir ekki síður frábæru nafni, Donna Lucia d‘Alvadorez. Sýningin gekk einnig undir nafninu Föðursystir Charleys.
Þessi tvö leikverk, Hjartsláttur Emils og Frænka Charleys, eru að öllum líkindum afar ólík en þau slá forvitnilegan tón í íslenskri sviðslistasögu sem átti eftir að endurhljóma næstu áratugina.
Þegar leikkonur bregða sér í hlutverk karlmanna á leiksviði á þessum tíma er yfirleitt um að ræða dramatískar aðstæður þar sem persónur taka sér vald eða valdastöðu, samhliða má benda á þær miklu samfélagslegu breytingar sem áttu sér stað yfir sama tímabil. En þegar karlmenn bregða sér í hlutverk kvenna er það yfirleitt í kómískum tilgangi. Þeir ganga í störf kvenna, sem hægt er að túlka sem niðrandi iðju, eða leika léttgeggjaðar eldri frænkur. Aftur á móti er Leikfélag Hringsins undantekning á þessari reglu.
Leikfélag Hringsins
„Þannig er eitt skemtifélag, sem margar af helztu konum bæjarins stofnuðu í fyrravetur, sem nú nýlega hafa haldið opinbera skemtan með lifandi myndum, (Tableau) sem þær hafa sjálfar eingöngu unnið að, til þess að mynda sjóð, er verja skyldi síðar til góðgerða handa bágstöddum.“ (Kvennablaðið, 28. febrúar 1905).
Rétt eins og Menntaskólinn í Reykjavík gat verið hinsegin rými, líkt og Þorsteinn Vilhjálmsson hefur skrifað um, og Kvennaskólinn í Reykjavík um aldamótin 1900 líka, eins og Íris Ellenberger hefur rannsakað, er hægt að ímynda sér að kvenfélög hafi líka getað verið svipuð rými, allavega sum þeirra. Í dag gæti verið auðvelt að halda að kvenfélög séu íhaldssöm fyrirbæri en á þeim tíma voru þau oft skapandi og spennandi vettvangur þar sem konur komu saman í þeirri viðleitni að hafa áhrif á samfélag sitt.
Kvenfélagið Hringurinn, sem starfar enn, var stofnað árið 1904 í þeim tilgangi að sinna líknar- og mannúðarmálum áður en velferðarkerfið sem við þekkjum í dag varð til. Ein helsta fjáröflunarleið félagsins á fyrstu starfsárum þess voru leiksýningar þar sem konur fóru með öll hlutverkin. Í bók Bjargar Einarsdóttur um félagið sem kom út árið 2002 kemur fram að á tímabilinu 1905 til 1928 settu kvenfélagskonur upp 27 leikþætti, samtals um 70 sýningar og tæplega 80 leikendur komu fram í sýningunum. Á efnisskrá leikfélagsins voru aðallega léttir gamanleikir, tableaux vivants (lifandi myndir) og tónlistaratriði.
Björg minnist þó á að heimildir séu takmarkaðar og fæstar leikskrár hafi varðveist. Henni hefur þó tekist að finna þó nokkuð af ljósmyndum af sýningunum, flestar í einkaeigu og erfiðlega hefur gengið að finna þær aftur, fyrir utan örfáar og ein af þeim birtist hér. Við mælum því með bókinni þar sem má finna ljósmyndir af konum í kossaflensi á sviði um 1906.
Leikhópurinn sem hélt starfseminni uppi voru margar hverjar nemendur eða kennarar við Kvennaskólann í Reykjavík þar sem Ingibjörg H. Bjarnason var skólastýra. Þetta voru til dæmis þær Þóra Matthíasdóttir (1879-1970), Ásta Einarsson (1877-1959), Sigríður Björnsdóttir (1879-1942), Ingibjörg (Imba) Brands (1878-1929), Anna Daníelsson (1856-1940), Elín Matthíasdóttir (1883-1918) og Soffía Daníelsson (1885-1947). Vitað er að einhverjar af þessum konum áttu í nánum rómantískum samböndum við hvor aðra á tímabilinu, eins og má lesa nánar um á vefsíðunni www.huldukonur.is.
Leikuppsetningar Hringsins slógu í gegn og uppselt var á hverja sýningu, líkt og kemur fram í dagblaðaumfjöllunum frá tímanum. Í sýningunum léku konur öll hlutverk, klæddu sig í karlmannsföt og léku sér frjálslega með kynhlutverk og kynvitund. Lítið er vitað um sýningarnar sjálfar og fá, ef nokkur, handrit hafa varðveist sem og leikskrár en það er verðugt rannsóknarefni að komast að því nánar.

Líkt og í Herranótt stigu nokkrir einstaklingar sem áttu eftir að gera leikhúsið að ævistarfi sínu sín fyrstu skref með Leikfélagi Hringsins. Þar má helst nefna leikkonuna Arndísi Björnsdóttur (1895-1969) sem tók fyrst þátt í leikverki félagsins 1914, þá 19 ára, en hún átti eftir að starfa í leikhúsi næstu 50 árin, fyrst hjá Leikfélagi Reykjavíkur og seinna í Þjóðleikhúsinu.
Haustið 1926 endursýna Hringskonur Erfðaskrá Bínu frænku en í þetta skipti var það karlmaður sem lék titilhlutverk Bínu, Tryggvi Magnússon (1896-1943). Skömmu eftir það döluðu vinsældir leiksýninganna og þær hættu loks sýningum.
Fjölmörg kvenfélög voru starfrækt og stofnuð í Reykjavík, sem og víðs vegar um landið, í byrjun 20. aldar. Var það leið kvenna til að skapa sér rými til áhrifa í samfélaginu þar sem þær fengu ekki aðgang að valdasamfélagi karla. Leikfélag Hringsins sýnir fram á glettna leið til fjáröflunar og skemmtunar, sýnileika kvenna í samfélaginu og mögulega hinseginleika þar sem konur, sem vitað er að lifðu óhefðbundnu lífi voru gjarnan ókvæntar og barnlausar konur á framabraut, settu upp leiksýningar fyrir almenning sem ögruðu og gerðu grín að hefðbundnum kynhlutverkum síns tíma. Þetta gerðu þær í samfloti við aðrar kvenfélagskonur sem lifðu hefðbundnara lífi, sem eiginkonur og húsmæður, en vildu engu að síður hafa áhrif á samfélagið og breyta stöðu kvenna innan þess.
Lokaorð
„…hann var klæddur ansi flott og mikið fjarskalega ósköp þótti mér hann falleg ung stúlka…“ (Gunnþórunn Halldórsdóttir, viðtal í Ríkisútvarpinu 1957).
Í fyrrnefndu viðtali Björns Th. Björnssonar við Gunnþórunni á RÚV spyr hann: „Yður finnst persónurnar í leikritum raunverulegar?“ Hún er tiltölulega snögg til svars: „Já, það er af því að ég hef aldrei leikið öðruvísi heldur en að gleyma sjálfri mér.“
Leikhúsið er vettvangur drauma, vona og tilrauna. Leikhúsið getur verið eins konar verndarhjúpur eða dula einstaklinga sem finna sig ekki endilega í samfélaginu sem þau dvelja í. Í leikhúsinu, bæði á leiksviðinu og bakvið tjöldin, fá þátttakendur tækifæri til að bregða sér í hlutverk sem þeim eru ekki aðgengileg í daglegu lífi, hvort sem er aðstæður, störf eða jafnvel kyn. Svo má leiða líkur að því að sviðsljósið sé frábær staður til að fela sig, að afhjúpun feli innri þrá. Ef vel heppnast til eru verðlaunin ekki einungis frelsi heldur einnig aðdáun og/eða félagsskapur annarra í leit að sama frelsi.
Heimildir
Björg Einarsdóttir. Hringurinn í Reykjavík: Stofnaður 1904 – Starfssaga. Hið íslenska bókmenntafélag, 2002.
Íris Ellenberger. „Ég er alveg í öðrum heimi: Kvennaskólinn í Reykjavík, kvennahreyfingin og hinsegin ástir meðal kennslukvenna um aldamótin 1900“. Ritið: tímarit Hugvísindastofnunar, 2021.
Þorsteinn Vilhjálmsson. Hundakæti : dagbækur Ólafs Davíðssonar 1881-1884. Mál og menning, 2018.
Ásta Kristín Benediktsdóttir, Hafdís Erla Hafsteinsdóttir og Íris Ellenberger. Huldukonur: Hinsegin kynverund kvenna á Íslandi fyrir 1960. Heimildir, túlkanir, námsefni. www.huldukonur.is.
Safn RÚV. www.ruv.is/um-ruv/safn-ruv.
Þorvaldur Kristinsson. „Loksins varð ég þó skotinn.“ Heimaslóð, 14. hefti, 2017, og www.samkynhneigd.is/pistlar/336-loksins-vard-eg-tho-skotinn.