Skammarþríhyrningurinn gerist í fjarlægri framtíð þar sem bakslagið hefur náð endatakmarki sínu. Verkið er ímyndaður hliðarveruleiki þar sem hópur framtíðarsérfræðinga reynir að púsla saman mynd af mannréttindaparadísinni sem eitt sinn var á Íslandi og svara aðkallandi spurningum:
Hvernig bjargaði J.K. Rowling kvennaklósettinu frá alþjóðlegum nauðgarasamtökum?
Hvers konar te drukku svokallaðar dragdrottningar?
Hver var þessi Hán?
En verkefni þeirra er afar flókið því bækurnar hafa allar verið brenndar, heimildirnar eru horfnar og mannlegur fjölbreytileiki utan strangrar tvíhyggju hefur verið bannaður og ritskoðaður úr sögunni.
Sviðslistahópurinn Stertabenda hefur frá árinu 2016 einbeitt sér að því að skapa vettvang fyrir hinsegin sviðslistafólk til að rannsaka aðferðir sínar, listsköpun og fagurfræði. Einn af forsprökkum sviðslistahópsins er Gréta Kristín Ómarsdóttir, en hún leikstýrir Skammarþríhyrningnum sem frumsýnt verður í Borgarleikhúsinu í október. „Hugmyndin kviknar þegar bakslagið er að byrja að ryðja sér rúms. Þá finnum við strax þörf fyrir að bregðast við því með einhvers konar listrænni rannsókn,“ segir Gréta Kristín. „Við förum bara lóðbeint í lokatakmarkið — inn í framtíðina þar sem það er búið að taka frá okkur kynrænt sjálfræði og hinsegin mannréttindi — og spyrjum: Er þetta það sem þið meinið?“.

Ríkissannleikurinn um regnbogann
Gréta segir hópinn sem stendur á bakvið Skammarþríhyrninginn takast á við erfiðar spurningar af einlægni. „Við förum í saumana á sjónarmiðum sem eru gjörsamlega gagnstæð því sem við trúum á og stöndum fyrir og reynum einfaldlega að taka þau alvarlega — af einhvers konar virðingu, þótt þau séu jafnvel óvinveitt okkur.“ Hún veltir fyrir sér hvað verði um frelsið, þegar búið er að taka í burtu frelsi hinsegin fólks til að skilgreina hver þau séu, hvernig þau elski og hvernig þau klæði sig. „Þegar einhvers konar ríkissannleikur ræður. Ríkiskyn? Í nafni hvers væri það?“
Vilja virkja hinsegin samfélagið
Gréta Kristín segir aðstæðurnar undarlegar fyrir hinsegin fólk um þessar mundir. „Við höfum enga skapandi útrás fyrir allt þetta hatur sem við mætum. Við horfum bara upp á athugasemdakerfið úthúða okkur.“ Hún nefnir gagnræðunámskeið Samtakanna ‘78 sem dæmi um frumkvæði sem þau hafi horft til. „Við viljum virkja hinsegin samfélagið,“ útskýrir hún, en Stertabenda býður upp á ókeypis leiklistarnámskeið fyrir hinsegin sviðslistafólk og stefnir á að hafa sköpunarferlið opið fyrir þátttöku hinsegin samfélagsins. „Við erum náttúrulega að gera þetta fyrir okkur,“ heldur hún áfram og á þar við hinsegin samfélagið í heild sinni. „Við mætum þessum aðstæðum — bakslaginu, efasemdunum og ásökunum — á skapandi máta. Þannig getum við ávarpað þetta í sameiningu.“
Lesið verður upp úr Skammarþríhyrningnum á Hinsegin dögum, miðvikudaginn 6. ágúst kl. 17:00-19:00 í Iðnó.
