Árið 2025 höldum við Hinsegin daga í 26. sinn, með dagskrá sem endurspeglar samfélagið okkar í allri sinni fjölbreytni og fágun – glimmeri og glamúr. Við höldum ótrauð áfram að byggja á grunni baráttu og gleði – og búum til rými fyrir sýnileika, samtal, tengsl og skilning.
Við vitum að samstaða kemur ekki af sjálfu sér. Hún byggir á sameiginlegri vinnu – oft ósýnilegri, sem hundruðir sjálfboðaliða, félagasamtaka og stuðningsaðila leggja til. Það er vegna þeirra sem Hinsegin dagar verða að veruleika, aftur og aftur. Þau sem búa til pláss, setja upp svið, skipuleggja, leiða, hlusta og styðja – af ást til samfélagsins. Þau eru hjarta og grunnur hátíðarinnar.
Samstaða þvert á landamæri
Við vitum að samstaða kemur ekki af sjálfu sér. Hún byggir á sameiginlegri vinnu – oft ósýnilegri, sem hundruðir sjálfboðaliða, félagasamtaka og stuðningsaðila leggja til. Það er vegna þeirra sem Hinsegin dagar verða að veruleika, aftur og aftur. Þau sem búa til pláss, setja upp svið, skipuleggja, leiða, hlusta og styðja – af ást til samfélagsins. Þau eru hjarta og grunnur hátíðarinnar.
Í ár hafa Hinsegin dagar lagt sérstaka áherslu á að sýna samstöðu með hinsegin fólki víða um heim. Við höfum látið til okkar taka á alþjóðavettvangi, meðal annars með þátttöku á mannréttindaráðstefnu í Washington D.C. og með sýnileika á Budapest Pride. Á þessum stöðum er vegið að grundvallarréttindum hinsegin fólks. Það er á ábyrgð okkar, sem búum við þau forréttindi sem margir Íslendingar njóta, að nota rödd okkar til að standa með okkar fólki – ekki aðeins hér heima heldur einnig utan landsteinanna. Sýnileiki og samstaða skipta máli, því að mannréttindi eru aldrei sjálfgefin. Við stöndum saman í Reykjavík, í Búdapest, í Washington og minnum á að tilvera okkar er óumdeilanleg.
Kynslóðirnar læra hver af annarri
Hinsegin dagar eru í stöðugri þróun, enda þarf hátíðin að vera í takt við hinsegin samfélagið hverju sinni. Aðstæður hinsegin samfélagsins og menning þess mótast
í tímans rás og því er mikilvægt að tryggja það að eldri kynslóðin sé hluti af Hinsegin dögum. Þau jarðtengja okkur – draga okkur niður á jörðina og eru oftar en ekki tilbúin til þess að deila með okkur sinni sögu og sinni baráttu. Við vitum að sagan er þekkt fyrir að endurtaka sig og því er mikilvægt að hún haldist lifandi innan okkar samfélags. Við þurfum því að vera forvitin um okkar sögu. Yngri kynslóðin þarf einnig að fá sitt rými á Hinsegin dögum. Frá þeim getum við lært svo ótal margt, svo sem að þora að vera forvitin um okkur sjálf og leyfa okkur að prófa nýja hluti. Þetta snýst nefnilega ekki um að vera eða ekki vera eitthvað eitt ákveðið, heldur er regnboginn heil litapalletta af möguleikum í kynvitund, kynhneigð, kyntjáningu og öðrum þáttum í hinsegin sjálfsmynd okkar.
Forvitni sem lykillinn að skilningi
Ekkert okkar getur sett sig nákvæmlega í spor næstu manneskju, því að upplifun okkar af lífinu og samfélaginu er ólík. En með forvitnina að vopni getum við færst nær hvert öðru, með því að vera óhrædd við að spyrja spurninga og hefja samræður um öll þau blæbrigði sem finna má innan hinseginleikans. Af hverju er eitt orð niðrandi í huga einnar manneskju en mikilvægur partur af sjálfsmynd annarrar? Hvernig tekstu á við mótlæti – og hvar finnur þú hinsegin gleði? Ef við mætum fólki af áhuga og raunverulega hlustum hvert á annað með það að markmiði að skilja, frekar en að svara, þá getum við fært samræðurnar á stað þar sem við græðum öll. Þegar öllu er á botninn hvolft erum við hluti af sama samfélagi – hinsegin samfélaginu. Samfélag sem spannar allan aldur, allt litróf kynja og kynhneigða, alls konar líkamsgerðir, fatlanir og litarhaft, upplifanir og bakgrunn. Meðlimir samfélagsins okkar eru af öllum toga: kokkar, krakkar, kennarar, kúabændur og kerfisstjórar. Það sem sameinar okkur er hinseginleikinn sem í okkur býr – og hann kallar á okkur að standa saman – að skapa samfélag. Hættum að vera leiðinleg hvert við annað. Það er hallærislegt.