Beint í efni

Hinsegin andspyrna í seinni heimsstyrjöld

Á björtum sumarmorgni 1. júlí 1943 voru tólf menn í hlekkjum leiddir út í sandskaflana við strönd Norðursjávar við bæinn Overveen, rétt vestur af Amsterdam. Þar voru þeir bundnir við stólpa, hettur settar yfir höfuð þeirra og síðan voru þeir skotnir til bana af aftökusveit af stuttu færi. Líkunum var svo hrúgað ofan í fjöldagröf í sandinum. 

Meðal þeirra látnu var 48 ára gamall maður sem stuttu fyrir andlátið hafði treyst vinkonu sinni fyrir því sem hann vildi að yrðu sín hinstu skilaboð til heims í greipum styrjaldar:

„Láttu fólk vita að samkynhneigðir eru engir aumingjar“

Willem Arondéus (1894-1943)

Korter yfir tíu laugardagskvöldið 27. mars 1943 birtist hópur manna í lögreglubúningum á tröppunum við hagstofu hollensku höfuðborgarinnar Amsterdam, í byggingu sem eitt sinn hafði verið tónleikahöll. Hagstofan hélt utan um helstu upplýsingar um íbúa Amsterdam-borgar og þar var auðvitað enginn við störf svo seint á laugardagskvöldi, nema tveir dyraverðir sem stóðu vörð fyrir utan. 

Lögreglumennirnir voru tíu. Foringi þeirra, höfuðsmaður með skammbyssu í beltinu, sagði að ábending hefði borist um að það gætu verið sprengjur í byggingunni. Það var svo sem ekkert ótrúlegt á þessum tíma þegar seinni heimsstyrjöldin stóð sem hæst. Þjóðverjar höfðu lagt Holland undir sig tæplega þremur árum áður, í maí 1940, og hernámið og styrjöldin lituðu allt lífið í Amsterdam. 

Svefnlyf og sprengjur 

Dyraverðirnir tveir hleyptu lögregluliðinu inn en höfðu ekki fyrr opnað dyrnar en aðkomumennirnir yfirbuguðu þá og sprautuðu niður með svefnlyfi svo að þeir misstu meðvitund.

Lögreglumennirnir drösluðu dyravörðunum út bakdyramegin áður en þeir fóru um ganga hagstofunnar, opnuðu skjalaskápa og skúffur og hentu pappírum í hrúgur á gólfinu og helltu yfir þá bensíni. Svo komu þeir tímastilltum sprengjum fyrir í húsinu og létu sig hverfa. 

Þegar sprengjurnar sprungu varð byggingin fljótt alelda, enda full af eldsmat. En þegar slökkvilið kom á staðinn – og hin raunverulega Amsterdam-lögregla – voru brennuvargarnir löngu horfnir út í nóttina.

Í hagstofu Amsterdam-borgar eftir skemmdarverk andspyrnumanna 1943.

Þýsk hernámsyfirvöld buðu strax háa fjárhæð, tíu þúsund gyllini, hverjum þeim sem veitt gæti upplýsingar um brunann í hagstofunni. Og það virðist hafa borið árangur. Einhver talaði. Því örfáum dögum síðar, í byrjun apríl 1943, knúði þýska leynilögreglan Gestapo dyra hjá 48 ára gömlum manni, sem hingað til hafði verið þekktari fyrir listsköpun en skemmdarverk.

Opinskár en óöruggur hommi

Willem Arondéus var fæddur 22. ágúst 1894 í Norður-Hollandi, yngstur sex systkina í fjölskyldu af verkamannastétt. Willem var listhneigður frá unga aldri. Hann nam teikningu og málaralist í listaskóla í Amsterdam og á millistríðsárunum vann hann fyrir sér sem auglýsingateiknari og myndskreytir en hann náði þó aldrei miklum framgangi sem listamaður – og átti oft erfitt með að ná endum saman. 

Á fjórða áratugnum var hann orðinn afhuga myndlist og sinnti ritstörfum. Hann gaf út tvær skáldsögur árið 1938, sem fengu aðeins sæmilega dóma, en 1939 gaf hann út ævisögu hollensks nítjándualdarmálara, Matthijs Maris sem mæltist vel fyrir. Á sama tíma voru þó óveðursský að hrannast upp yfir Evrópu sem áttu eftir að breyta farvegi lífs Willems Arondéusar eins og svo margra annarra. 

Arondéus hafði eiginlega aldrei farið í felur með það að hann væri samkynhneigður. Foreldrar hans hentu honum út vegna þessa þegar hann var táningur og síðar á ævinni var hann svo opinskár með kynhneigð sína að það þótti óvenjulegt, jafnvel í því samfélagi frjálslyndra og framsækinna listamanna og menningarfólks sem hann hrærðist í á árunum milli heimsstyrjaldanna. 

Hann fór ekki leynt með sambönd sín við aðra karlmenn og bjó stóran hluta fjórða áratugarins með grænmetissala að nafni Jan Tijssen. Þó lýstu samferðamenn Arondéusar því að hann hefði verið hlédrægur og oft virst þjakaður af óöryggi eða skömm sökum kynhneigðar sinnar: að vera ekki eins og allir aðrir. 

Frjálsir listamenn

Óöryggið háði Willem Arondéusi þó altjént ekki þegar Þjóðverjar lögðu undir sig Holland og hann gekk fljótlega til liðs við andspyrnuhreyfinguna gegn þýsku hernámi. Þar sem hann þekkti það vel að tilheyra fyrirlitnum minnihlutahóp, hafði hann óbeit á nasismanum frá fyrstu stundu. Margir hollenskir listamenn veittu andspyrnunni lið og Arondéus gaf út neðanjarðartímarit, Frjálsa listamanninn, ásamt myndhöggvaranum Gerrit van der Veen. Í það ritaði hann eldfimar greinar gegn Þjóðverjum og nasismanum.

Salome, mynd eftir Willem Arondéus, innblásin af leikriti Oscars Wilde, 1916.

Fljótt fóru Þjóðverjar að eltast sérstaklega við gyðinga Hollands. Þeim var gert að skrá sig hjá hinu opinbera og persónugögn þeirra merkt með gyðingastjörnu. Síðan var dregið jafnt og þétt úr borgararéttindum þeirra og í febrúar 1941 voru fyrstu hollensku gyðingarnir fluttir úr landi í fangabúðir í Austurríki. 

Hollenska andspyrnan gerði sitt ítrasta til að hjálpa gyðingum og árið 1942 hófu þeir Arondéus og van der Veen, ásamt fleirum, að útbúa fölsuð skilríki, svo að gyðingar gætu villt á sér heimildir og flúið land. Þar kom næmt auga og hönd listamannsins Arondéusar sér vel. Þetta var flókin og vandasöm vinna – það þurfti að að líkja nákvæmlega eftir letri og stimplum hins opinbera, nota rétt blek og réttan pappír en ef grunsemdir vöknuðu gæti það haft lífshættulegar afleiðingar fyrir handhafa skírteinisins og öll þau sem komu að málinu. 

Lifum ekki til stríðsloka

Arondéus og félagar gerðu sér fulla grein fyrir hættunni sem þau settu sig í. Arondéus hafði þannig hvatt kærasta sinn, grænmetissalann Tijssen, til að flytja burt frá Amsterdam svo að hann lenti ekki líka í hættu. Baráttan var orðin Arondéusi mikilvægari en ástalífið.

Og eitt kvöldið, þar sem þau bogruðu yfir skírteinum, nokkur saman við lítið borð í rökkvaðri kompu, leit Arondéus upp á samverkakonu sína sem sat við hliðina á honum og spurði hreint út: „Heldurðu að við lifum til stríðsloka?“ Konan, tíu árum yngri en hann, hljóðfæraleikari, hristi höfuðið. „Ég held ekki,“ svaraði hún. Arondéus var sama sinnis. Hann hafði ekki trú á því heldur, miðað við það sem þau tóku sér fyrir hendur, að þau myndu lifa það að sjá aftur frið í Evrópu. En bæði voru líka sammála um að það skipti þau ekki höfuðmáli. Áhættan væri þess virði.

Willem Arondéus og þessi félagi hans áttu fleira sameiginlegt en baráttuvilja og fórnfýsi. Þau töluðu reyndar aldrei mikið um það. En það var eiginlega jafn augljóst á þeim báðum. Hún var líka samkynhneigð og hafði aldrei farið sérlega leynt með það.

Frieda Belinfante var þarna að nálgast fertugt, fædd 1904 í Amsterdam, gyðingur í föðurætt og kristin í móðurætt, en alin upp trúlaus að mestu. Tónlistin skipti mestu máli á heimilinu en faðir hennar var píanóleikari og tónlistarkennari. Tíu ára gömul byrjaði Belinfante að læra á selló og strax á táningsaldri var hún farin að koma fram í helstu tónleikasölum Amsterdam.

Ekkert að afsaka

Árið 1930 giftist Frieda Belinfante, þá 26 ára, hljómsveitarfélaga sínum, flautuleikaranum Johan Feltkamp. Hún sagði honum hreint út að hún elskaði konur og gæti aldrei elskað karlmann á sama hátt en hann vildi samt endilega giftast henni svo að hún féllst á það. „Ég hef aldrei verið neitt að afsaka það hvernig ég er,“ sagði Belinfante í viðtali við Helfararsafn Bandaríkjanna löngu síðar, níræð að aldri. „Mér hefur alltaf fundist ég jafn ágæt og hver annar. Ég hef bara lifað mínu lífi.“

Nær allan þriðja áratuginn hafði Belinfante búið með tónskáldinu Henriette Bosmans – sem tileinkaði henni sellókonsert – og á meðan hjónabandi hennar og flautuleikarans stóð átti hún í opinskáum samböndum við fleiri konur. Um miðjan fjórða áratuginn fór Belinfante að starfa sem hljómsveitarstjóri og 1937 var hún skipuð hljómsveitarstjóri kammersveitar í sjálfu Concertgebouw í Amsterdam, einu rómaðasta tónleikahúsi heims. Það var að öllum líkindum í fyrsta sinn í sögu Evrópu sem kona var skipuð hljómsveitarstjóri atvinnuhljómsveitar. Hún kom margoft fram með sveitinni í hollenska útvarpinu og hafði nýlega unnið fyrstu verðlaun í virtri hljómsveitarstjórasamkeppni í Sviss þegar heimsstyrjöldin skall á og ferill Friedu Belinfante, eins og Willems Arondéusar, tók allt aðra stefnu. 

Það er alltaf einhver sem þarfnast hjálpar

Það varð snarlega minna að gera í menningarlífinu eftir að Þjóðverjarnir komu og þótt þýsk hernámsyfirvöld reyndu að tæla ýmsa hollenska listamenn til fylgilags hafði Belinfante, hálfur gyðingur, lítinn áhuga á því. 

Hún hafði því meiri frítíma og fór að venja komur sínar á kaffihús þar sem listamenn komu saman. Og það var þar sem hún komst í kynni við listamennina í andspyrnunni, eins og Willem Arondéus og skilríkjafalsara hans. Og Frieda Belinfante sá að þar gat hún fundið kröftum sínum farveg.

„Ég skil ekki fólk sem lifir bara fyrir sjálft sig. Hvaðan fær það hamingju? Hvaðan fær það lífsfyllingu?“ spurði Belinfante í áðurnefndu viðtali, níræð að aldri árið 1994. „Hvað gerir maður við líf sitt annars, við krafta sína? Einhver hlýtur að þarfnast hjálpar. Það er alltaf einhver.“

Æfingin skapar falsarann

Frieda Belinfante, Willem Arondéus og félagar þeirra urðu leiknir falsarar. Með fölsuðum skilríkjum þeirra tókst fjölda hollenskra gyðinga að fara huldu höfði. Ein stór hindrun var þó í vegi þeirra: í hagstofu Amsterdam-borgar voru geymdar nákvæmar upplýsingar um hvern einasta íbúa borgarinnar. Upplýsingar sem hernámsyfirvöld gátu notað til að hundelta gyðinga í Amsterdam, sama hvað þeirra fölsunum leið, og upplýsingar sem hægt var að nota til að fletta ofan af ólöglegri starfsemi þeirra.

Sagan segir að það hafi verið Arondéus sem fékk hugmyndina að því að sprengja hreinlega hagstofuna og brenna þannig skjölin sem hún geymdi. Kannski var það samt Belinfante. En það var altjént Willem Arondéus sem lék höfuðsmanninn í hollensku lögreglunni og fór fyrir brennuvörgunum laugardagskvöldið 27. mars 1943 – allir klæddir lögreglubúningum sem félagar þeirra í andspyrnunni höfðu vandlega útbúið – og laug því að dyravörðum hagstofunnar að þeir væru komnir að leita að sprengjum í byggingunni, þegar markmið þeirra var hið gagnstæða: að koma sprengjum fyrir.

Við vitum ekki hver það var sem svo kjaftaði í Þjóðverjana en það var íbúð Arondéusar sem Gestapo réðist inn í nokkrum dögum síðar, 1. apríl 1943. Og í fórum hans fundu Þjóðverjar pappíra með nöfnum vitorðsmanna hans, annarra andspyrnumanna, sem varð til þess að ellefu andspyrnumenn til viðbótar voru handteknir skömmu síðar og fluttir í fangageymslur. 

Smávaxinn með lítinn hatt

Frieda Belinfante var meðal fárra sem sluppu við handtöku. Hún frétti af því að Gestapo leitaði hennar en tókst að komast í felur með því að dulbúa sig sem karlmann, nokkuð sem hún hafði gert áður á ferli sínum í andspyrnunni. 

„Ég átti jakkaföt með vesti sem smellpössuðu á mig,“ sagði Belinfante þegar hún rifjaði upp dulargervið árið 1994. „En ég var dálítið þéttur, smávaxinn karlmaður. Ég þurfti að kaupa minnsta hattinn sem ég gat fundið og samt þurfti að setja borða innan í hann til að hann passaði á mig. Ég fór líka á rakarastofu og fékk mér almennilega herraklippingu. Rakarinn klippti mig bara eins og ekkert væri.“

Það kom sér vel að Frieda Belinfante átti karlmannsföt þegar hún þurfti að fara huldu höfði.

Frieda Belinfante var sannfærandi í karlmannsgervi, sérstaklega með hattinn. Það kom jafnvel fyrir að hún mætti móður sinni úti á götu og hún þekkti hana aldrei, né aðrir kunningjar. „Ég leit bara út eins og venjulegur ungur maður,“ sagði Belinfante. „Það er nefnilega ákveðinn kostur við að vera kona í karlmannsgervi, maður lítur út fyrir að vera tíu árum yngri.“

Í þrjá mánuði fór Belinfante huldu höfði í Hollandi þrátt fyrir að Þjóðverjar leituðu hennar logandi ljósi. Með aðstoð félaga í andspyrnunni tókst henni svo að komast úr landi og að lokum alla leið til Sviss.

Skömmin að vera hommi?

Belinfante dvaldi í Sviss til stríðsloka. Hún komst af. En Willem Arondéus hafði rétt fyrir sér – hann lifði ekki svo lengi. Hann var, ásamt ellefu vitorðsmönnum, dæmdur til dauða fyrir sprengjutilræðið í hagstofu Amsterdam-borgar og tekinn af lífi í sandsköflunum við Overveen að morgni 1. júlí 1943.

Vinir Arondéusar sögðu seinna að hann hefði oft skammast sín fyrir að vera hommi, öðruvísi, en á síðustu stundum lífs síns hefði honum verið umhugað um að sá hluti lífs hans og persónu myndi ekki gleymast. „Samkynhneigðir eru engir aumingjar“ – þetta vildi hann að yrðu hans síðustu skilaboð til heimsins.

Eftir ósigur Þjóðverja í styrjöldinni hömpuðu Hollendingar mjög andspyrnumönnum sínum og þeim sem fært höfðu fórnir til að vernda gyðinga og aðra hópa á stríðsárunum. Þó hefur verið bent á að minna hafi verið gert með minningu Willems Arondéusar og Friedu Belinfante miðað við marga aðra liðsmenn andspyrnunnar og lengri tími liðið þar til loks var farið að gera þeim eins hátt undir höfði og þeim sæmdi. Kannski vegna þess að jafnvel lengi eftir lok heimsstyrjaldar þóttu þau ekki fínn pappír, homminn Arondéus og lesbían Belinfante. 

Það er fyrst á síðustu árum sem fjallað hefur verið opinskátt bæði um hetjudáðir þeirra og hinseginleika.  

Ég vildi að ég hefði önnur níutíu ár

Frieda Belinfante flutti til Bandaríkjanna árið 1947 þar sem hún kenndi við tónlistardeild Kaliforníuháskóla, sinnti einkakennslu og spilaði með ýmsum hljómsveitum við ágætis orðstír. Einungis ein upptaka er þó til af sellóleik hennar, þar sem hún leikur annan sellókonsert Haydns í D-dúr með fílharmóníusveit Orange County. 

Þau fjölmörgu fölsuðu skilríki sem sella listamannanna í Amsterdam útbjó áður en upp um þau komst hafa án efa orðið mörgum hollenskum gyðingum – og öðrum sem þýskir nasistar stefndu í hættu – lífsbjörg. Í viðtölum seint á lífsleiðinni varð Friedu Belinfante þó tíðrætt um að henni fyndist að hún hefði átt að áorka meira í lífinu. Í viðtalinu við Helfararsafn Bandaríkjanna, níræð árið 1994, sagði hún: 

„Það er margt sem ég hefði getað gert, kannski, en lífið er svo stutt. Og því lengur sem maður hugsar um það því styttra verður það. En ég hugsa, ég vildi að ég hefði önnur níutíu ár. Því það er svo margt.“ Frieda Belinfante lést ári síðar.