Fræðarinn, pepparinn og kærleikskúturinn Unnsteinn er snúinn aftur með hið stórkostlega meðmælahorn. Í ár beinir hann sjónum sínum að Instagram og því sem það hefur upp á að bjóða, en eins og hann segir sjálfur „Instagram er eins og þinn eigin persónulegi fræðsluvefur. Það er bara að velja rétta reikninga til að followa“.
Doctor Carlton
@doctorcarlton
Endaþarmsmök 101, kynsjúkdómar og ýmsar hugmyndir af skemmtilegu og öruggu kynlífi. Dr. Carlton er giftur hommi með tvö börn og vinnur sem meltingafæralæknir. Í heimsfaraldrinum datt hann inn á tiktok og áttaði sig á því að það var mikil vöntun á fræðslu um endaþarmsmök. Instagrammið hans er bæði skemmtilegt og fræðandi.
Rebecca Minor
@gender.specialist
Rebecca er félagsráðgjafi sem hefur síðustu fjórtán ár helgað sig vinnu með trans og kynsegin ungmennum og fjölskyldum þeirra. Instað hennar er uppfullt af fróðleik sem er settur fram á mannamáli. Sjálf er hún hinsegin Gyðingur. Rebecca leggur mikla áherslu á að allt sem hún gerir sé áfallamiðað.
Serqininguak Ketura
@xsiqiniqx
Serqininguak er kynsegin aktívisti, Inúíti frá Grænlandi sem hefur vakið athygli á hinsegin málum og málefnum frumbyggja. Hán er listakvár sem liggur ekki á skoðunum sínum. Virkileg fyrirmynd sem ég mæli með að öll fylgi.
Todd Baratz
@yourdiagnonsense
Vantar þig stundum að heyra hlutina umbúðalaust? Þarftu að láta afflækja/hrekja mýtur og ráða úr furðulegu regluverki sem gerir ekkert annað en að flækja hlutina? Todd, sem er kynlífs- og sambandsráðgjafi, veltir við hverjum steini þegar kemur að sjálfinu og samböndum. Hann er óhræddur við að segja hlutina nákvæmlega eins og þeir eru sem er virkilega hressandi.
Matt Bernstein
@mattxiv
Ef þið eruð ekki að fylgja Matt þá er kominn tími til. Það er nákvæmlega svona sem hægt er að nýta samfélagsmiðla til að hafa áhrif; með virðingu fyrir sögu hinsegin fólks, dassi af attitjúdi og hárbeittum skilaboðum. Það er virkilega hressandi og valdeflandi að fylgja Matt.
Schuyler Bailar
@pinkmantaray
Schuyler er hvað þekktastur fyrir að vera fyrsti opinberi trans maðurinn til að keppa í NCAA (National Collegiate Athletic Association) sundliði þar sem hann keppti fyrir hönd Harvard. Á snilldarlegan hátt nær hann að gera jafnvel fjölbreytt og flókin málefni aðgengileg og hrífandi.
Annie Segarra
@annieelainey
Þekkt fyrir frábæra YouTube-rás þá gefur grammið ekkert eftir. Líkamsvirðing, fötlun, geðheilbrigði, hinsegin málefni og lífið með krónískan sjúkdóm. Instagrammið er er fullt af fróðleik sem hreyfir við manni á sama tíma og fatastíll Annie er legendary, algjörlega þess virði að fylgja.
Raquel Willis
@raquel_willis
Raquel Willis er aðgerðarsinni af lífi og sál, rithöfundur og fjölmiðlafræðingur sem leggur áherslu á að auka reisn jaðarsetts fólks, sérstaklega svarts trans fólks. Hún er fyrrverandi framkvæmdastjóri tímaritsins Out. Algjört gull sem glóir skært.
The Butch Bourdoir Project
@butchboudoirproject
Ert þú butch? Eða elskar þú bara butch týpur? Hér má sjá butch fegurð í allri sinni dýrð og það er nóg af dýrðinni! Markmið reikningsins er að auka sýnileika buch kvenna og kvára.
Old Gays
@theoldgays
Ef ykkur vantar eitthvað gott í hjartað þá eru gömlu hommarnir það besta. Síðustu ár hafa þeir verið með þætti á YouTube sem eru með því skemmtilegra þar sem þeir bæði miðla af þekkingu sinni og visku. Þótt stundum taki þeir fyrir erfið viðfangsefni er alltaf stutt í hláturinn og gleðina.