Hrútur

Jæja, elsku hrútur. Við vitum vel að þú ert stóra barnið í stjörnuþokuættinni og hagar þér eftir því. Þú býrð yfir miklum krafti og metnaði í lífinu. Það hefur reynst þér vel en á sama tíma hugsar þú lítið um glundroðann sem þú átt til að skilja eftir þig og hin stjörnumerkin þurfa svo að leysa úr. Það þarf ekki að snapa slag við alla. Stundum þarftu að velja bardagana sem skipta máli og hunsa aðra.
Okkur hinum er samt ekki illa við þig þótt það kunni að hljómi svo. Við erum bara að bíða eftir að þú áttir þig á hvort viljir vera top, bottom eða switch frekar en þessi óreiða sem þú kallar fram í núverandi formi. Því um leið og þú áttar þig á hver þú ert þá getum við hin mögulega boðið þér betri hluti.
Eins og oft á við um börn hrjáir þig eitthvert óþarfa stolt sem leyfir þér stundum ekki að brjótast út úr forminu. Þessi stirðleiki er þér ekki til framdráttar, þú þarft að leyfa þér að fara út á dansgólfið og vera smá lúði, eins Elton John. Ekki reyna að vera töffari eða einhver frumkvöðull, hreyfðu bara skankana eftir taktinum í mislitum sokkum án þess að spá hvað aðrir hugsa, vertu þú sjálft. Þannig skapar þú þér sérstöðu.
Frægir hrútar: Elton John, Mariah Carey, Lady Gaga, Lee Pace, Andrea Jónsdóttir
Naut
Elsku nautið mitt, legðu nú frá þér víbradorinn og kíktu út í garð með fólki. Þú átt svolítið til að loka þig af í þínu örugga umhverfi og missa af öllu því sem heimurinn og annað fólk hefur upp á að bjóða.
Jú, jú, fólk mun mögulega særa eða skilja þig eftir á dansgólfinu, en einungis þannig lærir þú á lífsins leik og hvað það er að vera hýr í hjarta, hljóði og verki.

Ég veit að það er oft mjög erfitt að breyta til og segja bless við gamlan vana og þægindi en þú þarft að prófa það sem lífið hefur upp á að bjóða. Ananas á pizzu hljómar kannski illa í eyrum þínum en þú veist ekki hvort þú fílir það nema þú prófir. Sama á við um samneyti karla, kvenna og kvára og allt það sem þú getur notið með því.
Því ég vil ekki að þú hættir að vera nautnadýr. Ég vil bara að þú stígir út úr rammanum og leyfir þér að njóta með einhverju öðru en leikfangakistunni.
Fræg naut: Kelly Clarkson, Cher, George Takei
Tvíburar

Þú ert bölvaður táningur og glyðra, en það er það sem við elskum við þig. Þú virðist til í flest allt en á sama tíma ertu ekkert að pæla of mikið í framtíðinni því þú ert fiðrildi mannlegu holdi klætt.
Af öllum stjörnumerkjunum þá ert þú það merki sem er líklegast til að hafa deitað helminginn af því fólki sem er á skrá í Samtökunum ‘78 og þar af leiðandi hafa allir einhverja sögur að segja af þér, sumar góðar og aðrar slæmar, en eins og með allt annað þá lætur þú það eins og vind um eyru þjóta. Því fyrir þér er lífið núna.
Þú þarft samt að læra að bera ábyrgð ef þú ætlar að byggja eitthvað fallegt með öðru fólki. Eins falleg og fiðrildi geta verið þá er líf þeirra stutt og auðgleymt og þess vegna þarftu að byggja eitthvað sem endist til frambúðar, hvort sem það er með manneskju eða einhvers konar “polycule”.
Því ég vil ekki að þú hættir að vera táningur í hjarta. Einungis að þú lærir að bera ábyrgð á meðan þú dansar inn í nóttina á Kiki.
Frægir tvíburar: Sir Ian McKellan, Laverne Cox, Anderson Cooper
Krabbi
Jæja, elsku besti krabbi. Það er kominn tími á að þú hættir að vera svona passíf-aggressíf manneskja og bara standir upp fyrir sjálfu þér.
Þú ert stundum svo upptekið við að smíða einhvers konar fjölskyldu að þú gleymir að þú átt nú þegar vini og stærri hinsegin fjölskyldu sem þú getur notið þín með. Þú þarft að leyfa þér að sletta úr klaufunum og fá þér dýran bjór á barnum á meðan fólk rennir til þín hýru auga.

Þú þarft ekki að sjá fyrirþér heila framtíð með manneskju sem þú hittir rétt í þessu. Stundum er bara nóg að kynnast fólki létt og halda áfram án þess að pæla í endalausu „hvað ef”. Lífið er rússíbani og tilgangslaust að hugsa um hvert hann leiðir.
Þú þarft líka að leyfa þér að finna fyrir þeim tilfinningum sem bærast innra með þér. Þú þarft ekki alltaf að vera sterka manneskjan og stundum er allt í lagi þótt þú sért tilfinningarík og berskjölduð.
Frægir krabbar: Gunnlaugur Bragi Björnsson, Jaden Smith, Jane Lynch, Lana Wachowski
Ljón

Veistu, við vitum alveg að þú ert rosa fabúljös og að þú ert mögulega barnabarn bresku konungsfjölskyldunnar úr annarri vídd. Við erum bara smá þreytt á að hrósa þér því stundum er eins og það sé aldrei hægt að hrósa þér nóg. Þú ert nefnilega svolítið frekt á sviðsljósið og okkur er bara orðið frekar kalt á meðan þú situr þarna eitt og nýtur birtunnar/sviðsljóssins.
Við viljum samt ekkert hrekja þig í burtu. Þegar þú keyrir áfram af fullum krafti þá ertu eins og stórstjarna á leið í gegnum vetrarbrautina. Gallinn er bara sá að það er hætta á að brenna sig ef man fer of nálægt.
Þess vegna selur þú alltaf meira þegar þú temur þér aðeins meiri auðmýkt. Við erum nefnilega svolítið ginnkeypt þegar stórstirni eins og þú sýnir auðmýkt á dansgólfinu og leyfir okkur að vera með. Hefur eitthvað með hunang og býflugur að gera skilst mér, en hvað veit ég.
Fræg ljón: Madonna, Gillian Anderson, Anna Paquin, Sigga Beinteins
Meyja
Ég var að hugsa um að segja eitthvað vont um þig, elsku meyja, en svo mundi ég eftir því að þú ert að öllum líkindum alltaf valin til að vera ritari eða gjaldkeri og hýðir þig sjálft bak við luktar dyr.
Eitt sem ég veit að þú vilt ekki að aðrir viti: Þú ert í raun og veru fokking frík. Þú ert músin sem laumast meðfram veggjunum sem umlykja dansgólfið en um leið og finnur traust með annarri manneskju birtist oft einhver latex klædd skepna sem enginn bjóst við.

Það er líka bara allt í lagi að vera svona villt og ég mæli eindregið með að þú temjir þér að leyfa dýrinu að ganga lausu reglulega því það er engum hollt að halda öllu þessu inni.
Get ég annars fengið símanúmerið hjá þér? Þarf nefnilega einstakling til að hjálpa mér með bókhaldið.
Frægar meyjur: Blu Del Barrio, Marsha P. Johnson, Vera Illugadóttir, Lady Zadude, Hörður Torfason
Vog

Þú ert fætt pólítíkus og átt til að vera álíka leiðinlegt. Fá merki nenna að setja sig í spor annarra eins og þú, en þú vilt líta gaumgæfilega á öll mál frá öllum hliðum. Það er samt ekki sætt og á einhverjum tímapunkti þarftu að velja þér hlið og standa við hana því ef þú gerir það ekki þá munu óprúttnir aðilar nýta sér hlutleysi þitt til ills.
Ef þú værir hundur, sem þú gætir verið ef þú stundar einhvers konar „puppy play”, þá værir þú Golden Retriever. Þú vilt að allir séu vinir. Þú ert svo mikið að reyna að vega salt með öllum í kringum þig sem er eiginlega ógerlegt. Kannski er bara tími kominn á smá skammt af raunveruleika og að átta sig á að lífið er hundasvæði þar sem ekki öllum kemur vel saman.
Ég ætla að gefa þér smá ráð: Að reyna að gera alla ánægða og sætta alla getur gert þig rosalega litlaust og það er fátt dapurlegra en litleysi. Enda er fáninn okkar regnbogafáninn en ekki svarthvíti fáninn.
Frægar vogir: Matt Bomer, Ben Wishaw, Julie Andrews, Jóhanna Sigurðardóttir, Sandra Sigurðardóttir
Sporðdreki
Þú átt svolítið erfitt í þessum heimi, það eru miklar tilfinningar sem bærast um í hjarta þínu ásamt helvíti erfiðu karma sem fær þig til að stinga alla í kringum þig sama hvort það eru vinir eða óvinir.
Það eru bara ekki allir sem vilja þér illt og þú þarft að róa þig áður en þú hrekur fólk endanlega frá þér. Þú þarft bara að taka smá Netflix og tjill og fá kannski eitt naut með þykkan skráp með þér í fjörið. Jafnvel steingeit ef þú ert með einhver foreldra-issues sem þú þarft að vinna þig í gegnum og vilt vera smá bottom í sambandinu. Þú gætir jafnvel lært hitt og þetta um sjálft þig.

Því innst inni ertu smá frík. Frík sem á ekkert að fela sig. Frík sem á bara að leyfa sér að vera fríkí og hafa gaman af lífinu.
Frægir sporðdrekar: Jodie Foster, Anthony Rapp, RuPaul
Bogakvár

Þið eruð glaumgosar og gleðigjafar sem eruð alltaf að horfa á það sem er handan næstu stjörnu. Engin bönd halda þér og þú ert alltaf á hreyfingu, hvort sem það er í holdsins heimi eða huga.
Þú ert líka bjáni. Grade-A bjáni.
Þú ert manneskjan sem flissar í jarðarförinni yfir þinni eigin hótfyndni. Þú ert bjáninn sem byrjar að hlæja að einhverju random drasli meðan þú ert að kaupa frosinn kjúkling. Því fyrir þér er lífið einhvers konar brandari sem enginn skilur nema þú. Lífið er náttúrlega bara leikbrúðusýning í anda Brúðubílsins.
Þetta er náttúrlega/auðvitað ástæðan fyrir því að þú ert hin besta sál og átt allt hið besta skilið. „Consequences be damned“, enda er það framtíðarvandamál sem þú þarft ekkert að hugsa um þrátt fyrir sviðna jörð að baki þér. Mundu samt bara að hinsegin samfélagið er frekar lítið þannig að þegar þú hefur brennt allar brýr að baki þér þarftu helst að hoppa upp í næstu þotu og fara eitthvert annað.
Höfundur er bogameri og neitar öllum ásökunum um brenndar brýr.
Frægt bogafólk: Miley Cyrus, Britney Spears, Sarah Paulson
Steingeit
Ef það væri til blæti sem einkenndi þig þá væri það „Financial Domination”. Þú ert manneskjan sem ert með báðar fætur á jörðinni á meðan þú rukkar grimmt fyrir störf þín.
Þú ert framkvæmdastjórinn í tilvistinni, eða þú telur þig í það minnsta vera það, og hikar ekki við að skipa öðrum fyrir eins og versti harðstjóri. Þér finnst gaman að siða vitleysinga og fáfróða til og jafnvel núa þeim um nasir hversu mikið þú veist, enda áttu til að vera fáránlega duglegt.

Þú ert líka merkið sem er líklegast til að vera einhvers konar „Daddy” í sambandinu, sama hvers kyns þú ert, enda er engin manneskja nógu góð til að halda utan um þessa ringulreið sem samband hefur í för með sér.
Ef ég ætti eitthvað ráð handa þér, sem ég veit að þú vilt ekki, þá er það að taka í faðm þér þá ringulreið sem lífið hefur upp á að bjóða og hætta að reyna að stjórna því. Ef þú vilt stjórna einhverjum þá færðu þér sub eða hund. Því lífið er köttur og enginn skipar ketti fyrir.
Frægar steingeitur: Ugla Stefanía, Siggi Gunnars, Ricky Martin, Wilson Cruz
Vatnsberi

Þú ert bara fokking geimvera. Innst inni þráir þú eitthvað venjulegt en gallinn er að venjulegt verður bara aldrei nógu gott fyrir þig. Enda kemur þú frá plánetu þar sem kynlíf og ást eru afstæð hugtök sem „basic bros and bitches“ stunda, ekki þú. Þinn helsti styrkur er að þú ert frá annarri plánetu. Á meðan þú afneitar þeim styrk ertu alltaf að afneita hluta af sjálfi þínu.
Fyrir þér er þín mannlega húð lítið annað en einhvers konar „gimp suit“ sem þú klæðist meðan þú ert fast hér. Svona eins og það að reyna að vera „mannleg vera” sé einhvers konar blæti sem þú hefur þróað með þér í gegnum aldirnar og það að vera á þessum hnetti sé lítið annað en risastórt geimveru BDSM partý. Ég satt að segja skil ykkur ekki.
Þið eruð samt fínasta fólk og ef við getum uppfyllt þetta mannlega blæti, „so be it“. Mæli bara með að finna einhverja dominant manneskju til að leiða þig í reipi og þá ertu komin í gott partý. Því innst inni vitum við að þú ert bölvað bottom.
Frægir vatnsberar: Adam Lambert, Portia de Rossi
Fiskur
Úff, fiskar. Þið eruð rosalega passívir en á sama tíma rosalega erfiðir. Því þegar straumurinn er á móti þér þá vilt þú leiðrétta strauminn frekar en að átta þig á því að mögulega hafir þú rangt fyrir þér. Svona eins og einn fiskur sem er ósáttur við hvert þjóðfélagið er að fara og þarf því að öskra eins og gamall hvítur karl á ský og bölva yfir trans fólki. Enda skilur hann ekkert af hverju restin af hjörðinni syndir fram á við á meðan hann er sáttur við einhverja 60’s heimsmynd sem aldrei var til.

Ástæðan samt fyrir þessu öllu saman er að þú ert mikil tilfinningavera. Innra með þér eru sterkar tilfinningar sem þú hefur vægast sagt enga stjórn á og bærast þar þangað til þær spretta út í söng eða einhverju álíka. Sem er ástæðan fyrir að mörgum kann að líka vel við ykkur, því þessar tilfinningar eru oft uppspretta alls konar fegurðar í söng, ljóðlist og bókum.
Ímyndunaraflið þitt er eins og hafið: Djúpt og seiðandi og fullt af mögnuðum hlutum.
Þú verður samt að átta þig á að ímyndundaraflið er ekki allt og stundum þarftu bara að drullast til að gera húsverkin eins og við hin.
Frægir fiskar: Páll Óskar, Elliot Page, Ruby Rose
