Að líða öruggu og geta farið á salernið. Þetta eru lágmarkskröfur sem fólk gerir til þeirra kaffihúsa og skemmtistaða sem það sækir. Hinsegin skemmtistaðir í Reykjavík hafa tekið breytingum í gegnum árin, allt frá Barböru til 22 til Curious, en í dag er aðeins einn staður í Reykjavíkurborg sem er yfirlýstur hinsegin bar, en það er Kiki á Klapparstíg. Hinsegin fólk sækir þó auðvitað aðra staði og því fór tímarit Hinsegin daga á stúfana, heyrði í djömmurum og fékk ábendingar um hvaða staðir eru hinseginvænir og/eða mikið sóttir af hinsegin fólki.
Til þess að lesendur fái mynd af því hvers konar staðir þetta eru og hversu aðgengilegir þeir eru ákvað höfundur að skipta þeim upp í nokkra flokka.
Hinsegin staðir fyrir hinsegin fólk → Kiki Queer Bar.
Staðir þar sem hinsegin fólk er velkomið, jafnvel í eigu hinsegin fólks (regnbogafánar uppi/aðgengileg klósett/gott vibe) → Gaukurinn, Röntgen, Loft hostel, Ölstofan, Dillon, Aldamót.
Staðir þar sem hinsegin fólk gæti hitt annað hinsegin fólk → Tjarnarbarinn, Kaffibarinn, Iðnó, Kaldi, Skúli, 12 tónar, Húrra, 10 sopar, Veður.
- Skemmtistaðinn Kiki Queer Bar þekkja flest. Karíókí á fimmtudögum og dragsýningar á föstudögum. Kiki býður öll velkomin og stemning þar er breytileg eftir því hverjir sækja staðinn hverju sinni. Það er langskemmtilegast að dansa á Kiki en ef þú ert ekki í stuði er hægt að tylla sér á efstu hæð og fara á trúnó (ef það er laust). Þetta er hinsegin staður fyrir hinsegin fólk.
- Gaukurinn er rótgróinn tónleika- og viðburðastaður og þar hefur myndast hefð fyrir hinseginvænum viðburðum, dragsýningum og öðru skemmtilegu sem fagnar hinsegin flórunni. Heyrst hefur að Gaukurinn verði bráðum með hjólastólaaðgengi.
- Röntgen á Hverfisgötu er eftirsóttur skemmtistaður og þar myndast oft hópar hinsegin fólks á spjalli eða á dansgólfinu. Diskókúlan er algjört æði.
- Á Aldamótum, við dómkirkjuna í Reykjavík, má stundum finna hinsegin fólk. Á Aldamótum er gerð einhverskonar tilraun til þess að vera með kynhlutlaus salerni og starfsfólkið er viðkunnanlegt. Hjólastólaaðgengi.
- Loft Hostel í Bankastræti er einn aðgengilegasti staður borgarinnar, bæði vegna hjólastólaðagengis og kynhlutlausra salerna, sem og áberandi regnbogafána. Svalirnar eru eftirsóttar á sólríkum dögum. Á Loft Hostel myndast oft mjög skemmtileg stemning meðal ferða- og heimamanna og andrúmsloftið er frjálslegt.
- Ölstofa Kormáks og Skjaldar á Vegamótastíg er notalegur bar skreyttur hinsegin fánum sem á marga fastagesti og er fullkominn í trúnó, en stemningin getur orðið heldur hetero um helgar. Hjólastólaaðgengi.
- Dillon: Andrea Jónsdóttir er með dj set á laugardögum. Rokk og viskí. Heyrst hefur að Dillon sé eða hafi verið í uppáhaldi hjá hinsegin konum.
- Kaffibarinn er rótgróinn í barsenunni og þangað sækja hörðustu djammararnir, já eða þau sem vilja bara kíkja í einn laufléttan á happy hour. Reykingasvæðið er gott, sem er mikilvægt fyrir hinsegin fólk.
- Kalda bar á Klapparstíg þekkja flest. Þar er hægt að sýna sig og sjá aðra eða kíkja á trúnó, hvort sem það er í einhverju horni eða undir hitalömpunum.
- Barirnir Skúli Craft Bar, 12 tónar, 10 sopar/Vínstúkan og Veður eru staðir þar sem hinsegin fólk kemur oft saman en þessir barir eru ekki með áberandi regnbogafána eða kynhlutlaus (aðgengileg) salerni.
Það er ekki mikið sem þarf til þess að trekkja að hinsegin fólk á barinn. Regnbogafáni á áberandi stað eða kynhlutlaus klósett gera staðinn aðgengilegri án mikillar fyrirhafnar. Ef til vill gleymdi greinahöfundur einhverjum bar í miðborginni og það er skömm að því að einungis hafi verið hægt að tala um bari í Reykjavík. Eitt er þó víst, seinasti bjórinn hefur ekki verið drukkinn á hinsegin skemmtistað í Reykjavík.