Viðtal við Írisi Björk Gunnarsdóttur og Bjarna Snæbjörnsson
Óperukompaníið hinÓperan undirbýr nú sína fyrstu uppfærslu: 27 eftir Ricky Ian Gordon og Royce Vavrek. Verkið fjallar um ástarsamband Gertrude Stein og Alice B. Toklas og lífið sem þær byggðu saman að 27 Rue de Fleurus í París. Sópraninn Íris Björk Gunnarsdóttir syngur hlutverk Stein og Bjarni Snæbjörnsson stígur þar sín fyrstu skref sem óperuleikstjóri, þótt hann hafi áður leikstýrt fjölmörgum verkefnum og starfað lengi innan íslensks söngleikja- og sviðslistaheims.
Þau Íris Björk og Bjarni komu inn í heim óperunnar með ólíkum hætti. Íris Björk nefnir að söngurinn hafi frá upphafi verið hennar leið til að tjá tilfinningar sem erfitt er að láta í ljós með öðrum hætti. „Það er eitthvað við það að syngja sem er bara rétt fyrir mig,“ segir hún. „Ég held að það sem kveikti áhuga minn fyrst hafi verið að ég fann hvað þetta var dásamleg leið til að tjá stórar tilfinningar. Það sem hefur haldið mér áfram inni í þessum, stundum klikkaða, óperuheimi er að fá að segja sögur sem hafa áhrif og ljá flóknum og djúpum sögupersónum rödd mína.“

Bjarni hefur hins vegar lengi verið virkur í íslensku leikhúslífi, ekki síst á sviði söngleikja. Hann er flestu áhugafólki um sviðslistir því að góðu kunnur – hann hefur sjálfur skrifað söngleik, sungið og leikið í uppfærslum stóru leikhúsanna og starfað víða á þessum vettvangi. Fyrsta formlega menntun hans á þessu sviði var aftur á móti klassískt söngnám við Söngskólann í Reykjavík: „Mér finnst því mjög eðlilegt skref að rannsaka óperuformið, enda eru þetta allt sviðslistir,“ segir hann. „Þetta er einhvern veginn allt skrifað í skýin!“
Mátti ég vera með í þessum heimi?
Hjá Írisi Björk varð áhuginn á óperunni svo snemma samofinn spurningum um sjálfsmynd og hvað það þýðir að tilheyra. Þá velti hún því fyrir sér hvort pláss væri fyrir hana sjálfa innan þessa heims: „Ég var 25 ára þegar ég ákvað að ég ætlaði að verða óperusöngkona. Já, ókei, kúl, kannski smá klikk en af hverju ekki? En að koma út úr skápnum og verða óperusöngkona? Má það? Er það hægt? Þetta voru allt hlutir sem ég spurði mig að á þessum tíma.“
Þegar hún stundaði klassískt söngnám við Listaháskóla Íslands árið 2020 fannst henni verkin og hlutverkin sem hún kynntist endurspegla takmarkaðan hluta mannlegrar reynslu. Þar voru konur sem fórnuðu sér fyrir ástina, voru myrtar af hefndargjörnum barítón eða dóu úr berklum í fangi myndarlegs tenórs. „En hvar voru allar lesbíurnar?“ spurði hún sig. „Mátti ég vera með í þessum heimi? Var pláss fyrir mig eins og ég er, eða þurfti ég að vera eins og allar hinar til þess að mega syngja á stóru sviði?“
Þetta leiddi síðar til þess að hún gerði rannsókn á hinseginleika í óperum. Í upphafi langaði Írisi Björk þó fyrst og fremst að finna sjálfa sig í listforminu sem hún hafði valið sér. „Mig langaði að sjá hinsegin sögupersónur syngja um ástina, fara í sleik, deyja úr berklum eða stinga hver aðra á hol. Lesbíur að deyja saman úr berklum í París upp úr 1890 – það er draumurinn!“
Hún fann á endanum 40 óperur þar sem hinseginleikinn er sýnilegur og segir verkin verða fleiri með hverju árinu. Sá sýnileiki skiptir hana grundvallarmáli. „Sjálf hef ég alltaf verið að leita staðfestingar á því að ég sé velkomin í þennan heim – og ég er stöðugt að finna hana, meðal annars í nýrri verkum þar sem hinsegin fólk er loksins orðið sýnilegur hluti af sögunni. Sýnileiki er lykillinn að samþykki. Listin sem við sköpum verður að spegla samfélagið sem við búum í, með öllum sínum margbreytileika og litadýrð.“
Dagskrárvald yfir okkar eigin sögum
Bjarni horfir á sömu spurningu út frá því hverjir fá svigrúm, fjármagn og vald til að segja sögurnar. „Í grunninn snýst þetta um að gefa hinsegin sviðslistafólki pláss, peninga og rými til að segja sínar eigin sögur,“ segir hann. „Að við fáum sjálf að hafa dagskrárvald yfir okkar eigin sögum og hvernig þær eru sagðar.“ Þá telur hann að hinsegin sjónarhorn geti ekki aðeins endurspeglað reynslu hinsegin fólks heldur einnig opnað nýja sýn á lífið og tilveruna fyrir aðra áhorfendur. Um leið vill hann víkka umræðuna út fyrir óperuna og víkur að sviðslistaheiminum í heild.
„Við þurfum að skoða vel hverjir hafa dagskrárvaldið í íslenskum sviðslistum og hvernig það vald er notað,“ segir hann og nefnir sérstaklega fjármagnið og ábyrgð stærstu sviðslistastofnananna. „Mig langar að sýna þessum stofnunum og landsmönnum öllum að það er hægt að setja upp magnaða hinsegin óperu með fagfólki, þar sem fókusinn er á hinsegin sögur. Ég er kominn með leið á því að hinsegin sögur séu settar á svið þar sem enginn, eða kannski einn, hinsegin sviðslistamaður kemur að málum.“
Að eiga heima á sviðinu
hinÓperan spratt einmitt upp úr þrá eftir rými þar sem hinsegin raddir, sögur og persónur fengju að vera í forgrunni og listafólk þyrfti ekki að skilja hluta af sjálfu sér eftir utan sviðsins. „Fyrir mér er mikilvægasta breytingin sú að nú veit ég að ég á heima á sviðinu nákvæmlega eins og ég er,“ segir Íris Björk. „Ég er jafnvel betri listakona einmitt með því að vera ég sjálf.“ Uppbygging nýs óperuhóps krefst þó ekki aðeins hugsjóna heldur einnig mikillar vinnu á bak við tjöldin. Sú vinna höfðar greinilega til Bjarna. „Mér finnst alltaf agalega gaman að vera með í svona brasi,“ segir hann. „Að finna út úr öllu, hringja símtölin, fá hjálp og ráðleggingar frá reynslumeira fólki og svo að lokum bara gera þetta.“
Hann segir fátt skemmtilegra en að vinna að mikilvægu verkefni með góðu fólki og hrósar Írisi Björk fyrir leiðtogahlutverk hennar í framleiðslunni. „Íris Björk er líka myljandi skemmtileg og klár. Það er svo gaman að vera samferða henni í að mynda þennan hóp og hjálpa til við þessa framleiðslu sem hún leiðir.“ Íris Björk segir samstarfið sjálft vera einn helsta drifkraftinn að baki verkefninu: „Það veitir mér ómælda gleði að vinna og skapa með öðrum listamönnum og standa síðan á sviði og hleypa áhorfendum inn í heiminn sem við höfum skapað saman.“
Með fyrstu uppfærslu hópsins gefst listafólki færi á að vinna með öðrum sem brenna fyrir því að segja hinsegin sögur og túlka persónur sem hafa lengi verið sjaldséðar á óperusviðinu. Vonin er að fleiri geti fundið sig í óperunni, bæði meðal þeirra sem standa á sviðinu og þeirra sem sitja í salnum.

Kjarninn er heimilið og ástin
Valið á 27 sem fyrsta verki hópsins var þó ekki tilviljun. Íris Björk kynntist óperunni þegar hún vann að rannsókn sinni sumarið 2020. „Ég datt niður á upptöku af 27 og varð eiginlega bara ástfangin við fyrsta tón,“ segir hún. „Tónlistin er dásamleg, melódísk, hrífandi og aðgengileg en á sama tíma dramatísk og áhrifamikil.“ Það sem heillaði hana ekki síður var hvernig verkið nálgast samband Stein og Toklas. „Hinseginleikanum er gefið rými í gleði og kærleika, af næmni og virðingu. Stein og Toklas lifa stórkostlegu lífi en kjarninn er heimilið og ástin á milli þeirra. Það er ekki verið að segja hinsegin ástarsögu heldur einfaldlega ástarsögu.“
Íris Björk vissi fljótt að hana langaði til að setja verkið upp á Íslandi. Hún hefur síðan sungið úr því við fjölmörg tækifæri og flutti hluta þess í meistaraverkefni sínu við Óperuháskólann í Osló. Hún fór einnig til Parísar, bjó í hverfi Stein og Toklas, gekk leiðina frá heimili þeirra að slóðum Picassos og skoðaði listaverkin sem höfðu hangið á veggjum þeirra: „Ég andaði að mér listinni og borginni sem þær – og ég – elska.“
Ekki bara vinkonur
Bjarni sér í verkinu tækifæri til að leiðrétta hvernig samband kvennanna hefur stundum verið sett fram í sögunni. „Í mínum huga fjallar 27 um eina stærstu ástarsögu síðustu aldar,“ segir hann. „Erindi óperunnar í dag er að gera upp þá ritskoðun að þær hafi ekki bara verið vinkonur heldur par og gefa þeim þann sess sem þær eiga skilið sem ástfangið hinsegin par sem hafði gríðarleg áhrif á listasöguna.“ Sú sýn mun einnig móta leikstjórn hans: „Fókusinn hjá mér verður að nálgast efnið þannig að ástin og nándin verði í forgrunni,“ segir Bjarni. „Ég vona að áhorfendur upplifi stóra ástarsögu með hjálp magnaðrar tónlistar og einstakra söngvara.“
Þetta tengist jafnframt þeirri trú að óperan geti haft áhrif langt út fyrir sviðið, sem Íris Björk er ekki í minnsta vafa um: „Ég er algjörlega sannfærð um að óperan sé stórkostlegt verkfæri sem má nota til að auka samkennd í samfélaginu.“ Með 27 vill hinÓperan því ekki aðeins færa eina hinsegin ástarsögu á svið heldur einnig skapa rými þar sem listafólk og áhorfendur geta fundið sig í óperunni á eigin forsendum.
