Beint í efni

Að elska það sem gerir okkur öðruvísi – Viðtal við Vice Versa um hinsegin burlesk

Þó að burlesk-stjarnan Vice Versa sé enn ung að árum, rétt að verða þriggja ára, þá hefur hún tekið sér bólfestu í ósköp venjulegri miðaldra lesbíu sem heitir Margrét. Og þó, kannski ekki alveg venjulegri, þessi lesbía er andsetin og heltekin af listformi sem nefnist burlesk. Vice Versa steig fyrst fram á sjónarsviðið í júní 2021 og hefur síðan þá komið fram í ótal sýningum á hinum ýmsu stöðum í Reykjavík og veit ekkert skemmtilegra en að sveifla sínum löngu leggjum sem víðast … enda fullyrðir hún að leggirnir séu þeir lengstu í bransanum.

Hvernig kemur burlesk-áhuginn til?

Fyrsta burlesk-sýningin sem ég fór á var jólasýning hjá burlesk-hópnum Dömur og herra í desember 2019. Eftir áramótin, í janúar 2020, var ég búin að skrá mig á burlesk-námskeið í Kramhúsinu hjá Margréti Erlu Maack og í febrúar var ég tilbúin með atriði sem ég sýndi í einkapartýum. Síðan hef ég líka setið fullt af  burlesk-námskeiðum bæði í Kramhúsinu og netnámskeiðum hjá burlesk-listafólki frá New York á faraldstímanum. Ég sem sagt kolféll fyrir þessu listformi. Ég er náttúrulega bara óþolandi og tala um lítið annað en það sem tengist burlesk, eins og ég segi, er algerlega heltekin, kærastan mín er mjög þolinmóð. Ég hef alla tíð verið mikið bæði í tónlist og myndlist en hef alltaf verið mjög nýjungagjörn týpa og hef lært á að minnsta kosti fjögur hljóðfæri og farið á alls konar myndlistarnámskeið. Burlesk er aftur á móti listform þar sem tækifæri gefst til að sameina svo margar listgreinar í einu atriði sem fer á svið. Ég vissi til dæmis ekki að ég hefði svona gaman af því að sauma og búa til búninga.

Hvað er burlesk?

Þetta er spurning sem ég fæ nánast í hvert skipti sem ég segi frá því sem ég er að gera og það eru sko til mörg svör við þessari spurningu. Burlesk er nefnilega ofboðslega frjálst listform og getur verið mjög mismunandi eftir því hvar í heiminum þú sérð það. Stutta svarið mitt við spurningunni er að burlesk er kynþokkafullur kabarettdans. En ef ég útskýri aðeins nánar þá flokkast burlesk undir sviðslistir, getur verið einhvers konar sambland af leikhúsi og dansi þar sem fjallað er um líkama, kynþokka, kyn og jafnvel mörk velsæmis. Oftast er þetta gert með miklum líkamlegum húmor en getur líka verið þrælpólitískt.

Mynd: Elín Björg Guðmundsdóttir

Í burlesk-atriði er það yfirleitt ein manneskja sem fer á svið og flytur ákveðna sögu sem getur verið misflókin en í langflestum tilfellum endar sagan á því að manneskjan er í heldur færri fötum heldur en hún byrjaði atriðið í … en þó ekki alltaf. Það má nefnilega gera alls konar í burlesk. Margir eru líka einhverju nær þegar ég nefni fjaðravængi, fjaðrabóur og brjóstadúska en þetta eru allt hlutir sem tilheyra klassísku burlesk og einhverjir kveikja líka á perunni þegar ég nefni bíómyndir eins og Cabaret, Chicago eða Moulin Rouge. Burlesk er líka náskylt dragi og á sér sinn kafla í sögu og menningu hinsegin fólks. Þar getum við til dæmis nefnt Berlin á millistríðsárunum. Á þeim tíma blómstraði kabarett í borginni, Magnus Hirschfeld talaði fyrir réttindum hinsegin fólks og meira frelsi til þess að vera hinsegin ríkti almennt. Hinsegin fólk sótti og tók þátt í kabarettsýningum þar sem svigrúm gafst til þess að leika sér með mismunandi tjáningu á kyni og kynhneigð. Sjónvarpsþættirnir Babylon Berlin fanga þessa stemningu mjög vel, mæli sko aldeilis með þeim

Er kannski drag og burlesk það sama?

Já og nei. Það er ofboðslega margt líkt með þessum listformum. Bæði í dragi og burlesk er það oftast ein manneskja sem fær hugmynd, setur saman atriði, búning, velur tónlist, skapar ákveðinn lítinn heim fyrir áhorfendur til að skyggnast inn í. Drag leikur sér meðal annars að því að brjóta upp stífar hugmyndir samfélagsins um kyn og ýkja steríótýpur og burlesk gerir það í einhverjum mæli líka en gengur þó meira út á að leika sér með kynþokka og stundum kynhneigð, þar er dansað á mörkum velsæmis.

Mynd: Elín Björg Guðmundsdóttir

Eins og í draginu er mikill húmor í burlesk og gengur sá húmor mikið út á hvað það er sem er kómískt við mannslíkamann … allir geta tengt við svoleiðis brandara og oft kemur það fólki á óvart hversu mikið er hlegið á burlesk sýningum. Burlesk brýtur líka upp stífar hugmyndir samfélagsins um hvað er fallegt. Það er einmitt eitt af því sem ég elska svo mikið við burlesk, að þar eru allir líkamar fallegir og velkomnir.

Hvað finnst þér burlesk hafa gert fyrir þig?

Þegar ég byrjaði í burlesk var ég strax með ákveðnar hugmyndir um hvað mig langaði að gera. Ég vildi nota þetta listform til þess að tjá á yfirdrifinn máta hinseginleika minn og mig langaði að brjóta upp hugmyndir um kyn, það sem er stundum kallað „gender bending”. Ég held að ég eigi þrjú atriði sem ég hef sýnt sem fjalla á einhvern hátt um kyn og kynhneigð en svo á ég auðvitað líka atriði sem fjalla ekkert sérstaklega um það. Samt sem áður þá er burleskið ákveðin leið fyrir mig til þess að lyfta upp og deila með öðrum öllu því sem gerir mig öðruvísi en aðra. Burleskið hefur því tvímælalaust verið ákveðin leið til þess að læra að elska það sem gerir mig frábrugðna öðrum. Það sem er öðruvísi við mig er um leið það sem gerir mig einstaka og þegar ég fer á svið er ég að sýna það með stolti. Fyrir utan að vera lesbísk og örvhent er ég líka vel yfir meðallagi í hæð og með rosalega langa fótleggi og vil þess vegna gjarnan vera kynnt þannig á svið. Hér áður fyrr þegar ég var unglingur var það að vera hávaxin stelpa ógeðslega vandræðalegt og leiðinlegt. Ég var líka lengi að koma almennilega út úr skápnum en í stað þess að vera bitur og leið yfir því að hafa ekki getað notið þess að vera ég sjálf fyrr þá nota ég burlesk-persónuna mína til að vera súper gay og hella hinseginleikanum yfir fullan sal af fólki. Það sem ég er kannski að reyna að segja er að burlesk fyrir mér er bæði valdeflandi og frelsandi og þetta eru lýsingarorð sem ég heyri mjög margt burlesk-fólk tala um.

Mynd: Elín Björg Guðmundsdóttir

Þar sem ég er í þeim minnihlutahópi að vera lesbía þá eru mínar hugmyndir um hvað er kynþokkafullt við konu kannski að einhverju leyti frábrugðnar því sem gagnkynhneigðu fólki finnst kynþokkafullt. Í mínum burlesk-atriðum vil ég því brjóta upp normið og sýna eins gay hlið á mér og ég mögulega get, á sviðinu er það ég sem stjórna, ég ræð hvað ég sýni og hvernig. Það er mitt val að fara á sviðið og þessi reynsla er mjög valdeflandi. Á sviðinu er ég búin að taka völdin af samfélaginu, ég er búin að taka í burtu þau höft sem samfélagið reynir að setja á mig, brýt upp normið. Þetta vald sem ég tek mér skilar sér sem ákveðin uppreisn út í sal til áhorfenda sem fagna því með mér sem er náttúrulega fáránlega skemmtilegt. Þetta er sjúklega ávanabindandi sport sko.

En þó ég tali svona ögn formlega um þetta þá er þetta líka bara tækifæri til þess að leika sér og fíflast, skemmta fólki og fá það til að hlæja og gleðjast yfir fáránleika mannslíkamans. Burlesk hefur bæði kennt mér og veitt mér tækifæri til að elska einmitt það sem gerir mig öðruvísi. Því myndi ég eiginlega segja að atriðin mín séu eins og mín einkahinseginganga sem ég fæ að sýna oft, oft á ári!!! Elskum það sem gerir okkur öðruvísi, elskaðu að það getur enginn verið nákvæmlega eins og þú, verum sýnileg og fögnum fjölbreytileikanum á sem fjölbreyttastan hátt.

Er burlesk eitthvað sem allir geta gert?

Já, ábyggilega ef fólk langar til þess á annað borð. Það er nefnilega líka alveg hægt að hafa ánægju af því að fara bara í burelsk kennslutíma. Það þarf ekkert endilega að fara á svið til þess að hafa gaman af þessu. Ég var til dæmis með svona vinnustofu í burlesk á Reykjavík Fringe festival í júlí sem var sérstaklega ætluð fyrir hinsegin fólk þó auðvitað væru allir velkomnir og ætla svo að halda annað núna á Hinsegin dögum. Þetta er sem sagt klukkutíma burlesk-kennsla þar sem fjallað er um burlesk út frá hinsegin sjónarhorni. Kannski er best að taka það fram líka að það þarf ekkert að óttast, það verða engin föt látin falla. Ég kenni nokkrar grunnhreyfingar og við pælum saman í mismunandi tjáningu á kyni, kynhneigð og kynþokka. Þetta verður haldið í hinu ofurkósí Kramhúsi sem er fullkomið til þess að prófa að stíga út fyrir þægindarammann og láta sitt einstaka ljós skína. En fyrst og fremst á þetta að vera skemmtilegt og létt partý með dansi, fjöðrum og smá búbblum líka. Viðburðurinn er partur af utandagskrá Hinsegin daga.