Framávið
Hvar finnurðu til?
Hver kvaldi þig?
Hvaðan berst verkurinn, vinur?
Hvað ógnaði þér?
Ögraði þér?
Hvað gerist ef heimur þinn hrynur?
Þú heldur kannski að leiðin til baka
sé lokuð úr þessari átt.
Hvað ef þér fyndist þér heimilt að taka,
að endingu sjálft þig í sátt?
Berst, brotið og sárt.
Dapurt og smátt.
Hrópar í tómið og hræðist.
Leit, leiðin er löng,
torfarin, ströng.
Sérðu að veðrið það glæðist?
Þú heldur kannski að leiðin til baka
sé lokuð úr þessari átt.
Hvað ef þér fyndist þér heimilt að taka,
að endingu sjálft þig í sátt?
Nú set ég fótinn niður.
Ég segi stopp.
Ég ber í borðið,
þett’er komið gott.
Hingað og ekki lengra,
staldraðu við.
Því rétta leiðin liggur
framávið.
Rót, fíngerð, en föst.
Röggsöm ef móti blæs.
Fortíðin flækir margt.
Lauf blaktandi blær,
grímulaust grær,
horfir í storminn, djarft.
Við setjum fótinn niður.
Við setjum fótinn niður.
Því rétta leiðin liggur
framávið.
Hingað og ekki lengra,
staldraðu við.
Því rétta leiðin liggur
framávið.
Nú set ég fótinn niður.
Ég segi stopp.
Ég ber í borðið,
þett’er komið gott.
Hingað og ekki lengra,
staldraðu við.
Því rétta leiðin liggur
framávið.
Því rétta leiðin liggur
framávið.
Lag og texti:
Guðjón Þorgils Kristjánsson, Axel Ingi Árnason og Inga Auðbjörk K. Straumland.
